Fréttasafn

  • Skák veturinn 2024-2025

    Opnað hefur verið fyrir skráningu í skák veturinn 2024-2025. Ef að systkynaafsláttur kemur ekki inn vinsamlegast bíðið neð skráningu og hafið samband í haukarska@simnet.is Skráning fer fram á Sportabler undir Haukar, Skákdeild. Athugið að árgjaldið hefur hækkað til að standa undir kostnaði. sjá skýringu og frekari upplýsingar á Sportabler skráningarsíðunni. https://www.abler.io/shop/haukarskak

  • Styttist í að handboltinn fari af stað

    Handboltatímabilið fer að byrja aftur! Nú er handboltatímabilið rétt handan við hornið og eru stelpurnar að taka þátt í sterku æfingamóti í Svíþjóð þessa dagana. Hægt er að fylgjast með leikjunum gegn gjaldi hér, https://handbollplay.se/annlizcup/ Strákarnir taka svo þátt í Hafnarfjarðarmótinu sem hefst 20. ágúst og verður leikið að Ásvöllum þetta árið. Þá munu bæði kvenna-…

  • Haukamótið í golfi

    Haukamótið í golfi verður haldið á golfvelli  Keilis á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 20. september 2024. Nánari tilkynningar um fyrirkomulag og hvenær skráning hefst verður send út síðar.   Áfram Haukar, Undirbúningsnefnd.

  • Haukastrákar á EM

    U-20 ára landslið karla var einnig á stórmóti á dögunum þegar þeir tóku þátt á Evrópumóti U-20 ára liða. Þar áttu Haukar einnig fulltrúa sem hjálpuðu liðinu að ná 7. sæti mótsins sem er jöfnun á besta árangri Íslands í þessum árgangi. Í liðinu voru þeir Andri Fannar Elísson, Birkir Snær Steinsson, Össur Haraldsson og…

  • Andlátsfrétt

    Látinn er langt fyrir aldur fram, Gísli Ölver Sigurðsson, góður og gegn Haukamaður. Gísli fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1969. Hann æfði og spilaði handbolta í yngri flokkum Hauka og í meistaraflokki félagsins um árabil.  Knattspyrnufélagið Haukar sendir fjölskyldu Gísla innilegar samúðarkveðjur.

  • Sara Sif til liðs við Hauka

    Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Söru Sif Helgadóttur um að hún leiki með Haukum næstu tvö árin. Sara Sif er 24 ára markvörður sem er uppalin í Fjölni en hefur leikið með Val síðustu þrjú tímabil og þar á undan var hún leikmaður Fram í þrjú tímabil en tvö af þeim lék hún með HK á láni. Sara…