Konur – takið kvöldið frá
Ágæta Haukakona Jæja, þá er loksins komið að hinu vinsæla kvennakvöldi Hauka. Það verður haldið að Ásvöllum föstudaginn 30. apríl n.k. Þetta verður með hefðbundnum hætti, góður matur, happadrætti og fleira. Veislustjóri verður Harpa Melsted, meistaraflokksleikmaður í blóma. Ræðukona verður Ágústa Jóhannsdóttir og svo endar kvöldið með hljómsveitinni Randver. Bræðragengið framreiðir góðan mat fyrir okkur…
