Fréttasafn

  • Haukar-Víkingur mfl. kvenna

    Stelpurnar okkar tóku á móti Víking á Ásvöllum í kvöld og unnu öruggan sigur 33-24. Þær skoruðu fyrsta markið og jafnt var í 3-3. Haukar skorðu næstu fjögur og staðan góð 7-3 en Víkingur átti næstu fjögur og jafnaði 7-7. Þá skildu leiðir og staðan í hálfleik var 17-13 og í síðari hálfleik juku stelpurnar…

  • Búið að draga um töfluröð!

    Búið er að draga um töfluröð á Íslandsmóti skákfélaga, sem fram fer helgina 19-21.nóvember. Við erum nr.2 í töflunni í 2.deild og fáum Bolvíkinga, eina af verðugustu andstæðingunum, strax í fyrstu umferð. Prógrammið er annars eftirfarandi. Fyrir jól: 1. umf. Bolungarvík (H) 2. — Akranes (S) 3. — Kópavogur (H) 4. — Reykjanesbær (H) Eftir…

  • M.fl. kk – 2. fl. kk

    Minni á fyrirlestur um næringu/bætiefni í kvöld, mánudaginn 8. nóv. kl. 18:45 á Ásvöllum. Bjarni frá EAS verður gestur fundarins og útskýrir helstu bætiefni frá fyritækinu. Æfing hjá 2. fl. kk að loknum fyrirlestri (hafið með hlaupa- og fótboltaskó). jg

  • Haukar-ÍBV

    Stelpurnar hreinlega völtuðu yfir ÍBV í dag og sitja einar í efsta sætinu með fullt hús stiga. Lokatölur voru 35-25 og var Hanna atkvæðamest með 9 mörk.

  • Kiel – Haukar

    Þannig fór um sjóferð þá, strákarnir byrjuðu vel á móti þýska liðinu Kiel en fljótlega varð ljóst hvert stefndi. Heimamenn hreinlega völtuðu yfir strákana okkar sem áttu ekki góðan dag. Staðan í hálfleik var 21-9 og endaði leikurinn 39-23. Ekki tölur sem við eigum að venjast en þá verðum við bara að endurheimta stigið sem…

  • Kiel-Haukar, bein útsending

    Nú er hluti af Haukurum farinn til Danaveldis og von er á fleirum á morgun ásamt strákunum okkar. Þaðan fer hópurinn svo til Þýskalands þar sem stefnt er á einn erfiðasta heimavöll heims. Við þekkjum þá tilfinningu og ætla strákarnir að standa sig. Leikurinn við Kiel er á sunnudaginn eða kl. 14:00 að íslenskum tíma….

  • Haukar 2 enn taplausir

    HK 2 mætti á Ásvelli í gær með von í huga um tvö stig í hús eftir þá heimsókn. Annað kom hinsvegar á daginn… Fyrri-hálfleikur Raggi lokaði búrinu í fyrrihálfleik og hélt okkur á floti, þar sem við vorum frekar slappir sóknarlega. Varði pilturinn m.a. þrjú víti. Í hálfleik var staðan jöfn 13-13. Seinni-hálfleikur Í…

  • HK-Haukar

    Leikurinn byrjaði ekki vel og voru strákarnir smá stund að komast í gang. Áttu reyndar í smávægilegu basli með vörnina hjá heimamönnum sem spiluðu mjög svo ákveðna vörn. Heimamenn leiddu til að byrja með en við komumst svo yfir eftir mikið þóf um miðjan fyrri hálfleikinn og létum það ekkert af hendi. Vörnin var einnig…