Fjöltefli.
Skákdeild Hauka hefur tekið að sér fjöltefli í Áslandsskóla næstkomandi föstudag milli kl. 17-18. Er einhver tilbúinn að taka þetta að sér með Varða? Vinsamlegast hafið samband aui@simnet.is eða 821-1963 Aui
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Skákdeild Hauka hefur tekið að sér fjöltefli í Áslandsskóla næstkomandi föstudag milli kl. 17-18. Er einhver tilbúinn að taka þetta að sér með Varða? Vinsamlegast hafið samband aui@simnet.is eða 821-1963 Aui
Laugardaginn 20. maí síðastliðinn lék meistaraflokkur karla hjá Haukum sinn annan leik 1. deild sumarið 2006, þessi leikur var gegn Fjölni á Fjölnisvelli. Vallarskilyrði voru ágæt en veðrið var heldur óhagstætt til knattspyrnuiðkunar en kalt var í veðri með vindi sem gerði það að verkum að liðin skiptust á milla að vera með vindinum þar…
Það eru 3 Haukamenn sem að takak þátt í Ólympíumótinu í Tórínó. Þetta eru þeir Aloyzas Kveinys 2532 og Vidmantas Malisauskas 2503 sem að keppa fyrir Litháen. Síðan er Stellan Brynell liðstjóri hjá Svíunum. Við óskum þeim að sjálfsögðu góðs gengis.
Nú er hafin skráning í Knattspyrnu og leikjaskóla Hauka og Landsbankans sem verður starfræktur á Ásvöllum í sumar. Skólinn er fyrir alla hressa krakka á aldrinum 5-12 ára. Fyrsta vikunámskeiðið hefst þann 12.júní og líkur síðasta námskeiðinu föstudaginn 11. ágúst. Hægt er að skrá sig hér á heimasíðunni undir „Knattspyrnuskólin“ í aðalvalmyndinni. Þar er einnig…
Ég harma það að félagi okkar úr Haukum Snorri G. Bergsson hafi ákveðið að skipta úr félaginu og yfir í TR. Ég þakka Snorra fyrir samstarfið síðatliðin ár og óska og honum velfarnaðar í nýju félagi. Auðbergur Formaður
Mánudaginn 15. maí síðastliðinn spilaði meistaraflokkur karla hjá Haukum sinn fyrsta leik í 1. deildinni sumarið 2006. Leikurinn var gegn Þrótti frá Reykjavík en þeir féllu úr Landsbankadeildinni síðastliðið sumar en síðan þá hafa verið miklar mannabreytingar á þeirra liði eins og hjá okkar mönnum í Haukum. Leikurinn var sá fyrsti sem háður var á…
Komið þið sæl. Æfingataflan frá og með 18. maí er eftirfarandi: mánudagar kl: 16:30-17:30 miðvikudagar kl: 16:30-17:30 laugardagar kl: 11:00-12:00 Allar æfingarnar eru á grasi eða gervigrasi á Ásvöllum. Athugið breyttan æfingatíma. Laugardaginn 27. maí er æfingamót í Fífunni. Fimmtudaginn 1. júni er foreldrafundur kl: 20:30 á Ásvöllum Laugardaginn 10. júní er leikur við foreldra….
Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka verður haldið að Ásvöllum, föstudaginn 19. maí n.k. Húsið opnar kl. 20:00 og hefst borðhald kl. 21:00. Takið með ykkur spil þar sem ræða formanns verður í lengra lagi. Verð aðeins kr. 1.000 Allir velkomnir Haukamenn fjölmennið og fagnið uppskeru vetrarins í góðra vina hópi
Í kvöld gekk Magnús G. Sigmundsson markvörður til liðs við Hauka. Magnús lék áður með Haukum í sex ár samfleytt og kemur nú til baka og bjóða Haukar Magnús innilega velkominn á Ásvelli. Við hlökkum til að sjá strákinn milli stanganna næsta vetur.
Á miðvikudaginn koma í heimsókn til okkar Haukafólks krakkar frá Svíþjóð. Krakkarnir eru á aldrinum 15-16 ára og eru í Junedals skólanum. Krakkarnir fá góða dagskrá á meðan þessari heimsókn stendur, meðal annars að heimsækja Gullfoss, Geysi og Bláa lónið, fara í „sight-seeing“ um Reykjavík og spila á handboltamóti sem haldið verður á Ásvöllum á…