Haukastelpur í Höllinni
Á laugardaginn, 10.mars, spila stelpurnar okkar til bikarúrslita gegn Gróttu í Laugardalshöll. Leikurinn hefst klukkan 13:30 og að sjálfsögðu ætlum við Haukamenn að fjölmenna í Höllina og styðja okkar stelpur til sigurs. Dagskráin hefst klukkan 10:30 á Ásvöllum. Þar verður boðið upp á andlitsmálun og annað til að hita upp fyrir átökin inn í Höll….
