Fréttasafn

  • Vinnubrögð dómsstóla HSÍ

    Niðurstaða dómstóla HSÍ vegna bikarleiks Hauka og ÍBV 2024 voru Haukum mikil vonbrigði, bæði í ljósi þess að Haukar unnu sannfærandi sigur gegn ÍBV og vegna þess að vinnubrögð HSÍ þykja ófagleg. HSÍ tók enga ábyrgð á bilunum í kerfi sem félög þurfa að nota, enga ábyrgð á reglum sem ganga þvert á aðrar reglur, enga…

  • Andlátsfrétt

    Júlíus Pálsson er látinn eftir erfið veikindi. Júlíus lék handbolta með Haukum um nokkura ára skeið í kringum 1980 og varð m.a. Bikarmeistari í meistaraflokki karla það ár. Júlli Páls eins og hann var gjarnan kallaður var liðtækur í handbolta og spilaði sem skytta og útileikmaður. Júlli bjó lengi í Kaupmannahöfn og rak þar ferðaskrifstofuna…

  • Getraunahópur Hauka

    Þeir voru glaðbeittir félagarnir sem hittust í morgun í Guðsveinsstofu til að spá í spilin í getraunum dagsins. Góð stund með góðum félögum og líflegar umræður með kaffi og kruðirí á kantinum. Að loknum spádómum um gengi liða í enska boltanum var rölt út í nýju knatthöllina sem senn verður tekin í notkun. Loksins, loksins, eru…

  • Spennandi Evrópuleikir á Ásvöllum – Komum og hvetjum stelpurnar til sigurs!

    English below 🙂 Næstu helgi spilar Meistaraflokkur kvenna tvo spennandi leiki í EHF Bikarnum á móti úkraínska félaginu HC Galychanka Lviv í 16 liða úrslitum. Þetta verður þriðji mótherji stúlknanna í keppninni, en nú fáum við loksins að sjá þær spila á heimavelli hér á Íslandi. Fyrrileikurinn fer fram á laugardaginn 11. janúar klukkan 17:00…

  • Andlátsfrétt

    Þau sorglegu tíðindi bárust á gamlársdag að góður starfsmaður Hauka til áratuga, Bjarni Hafsteinn Geirsson, hafi látist eftir skammvinn veikindi. Haddi Geirs, eins og hann var ævinlega kallaður, markaði djúp spor í sögu okkar Haukanna. Bjarni Hafsteinn var á unga aldri góður handknattleiksmaður, hann sat um tíma í stjórn Knattspyrnufélagsins Hauka og gengdi þar lengi…

  • Fyrsti leikur ársins!

    Fyrsti leikur ársins hjá Haukastelpum er spennandi útileikur á móti Stjörnunni í Heklu höllinni. Leikurinn verður einnig í beinni útsendingu á Handboltapassanum. Haukastelpur sitja nú í 3. sæti deildarinnar með 12 stig, og þær munu án efa gefa allt í leikinn til að halda sér í toppbaráttunni. Við hvetjum alla stuðningsmenn til að mæta á…

  • Viðurkenningarhátíð Hauka á gamlársdag 2024

    Um áramót héldu Haukar sína árlegu viðurkenningarhátíð þar sem við veitum okkar góða íþróttafólki viðurkenningar og tilnefndum einstaklinga í kjöri um íþróttakonu Hauka, íþróttakarls Hauka og þjálfara Hauka árið 2024. Viðurkenningarhátíðin var vel sótt og margir fögnuðu góðum árangri á árinu 2024. Elín Klara Þorkelsdóttir, handknattleikskona, var kjörin íþróttakona Hauka, Gunnlaugur Sigurðsson, karate, var kjörinn…

  • Elín Klara kjörin íþróttakona Hafnarfjarðar 2024

    Á viðurkenningarhátíð Hafnarfjarðabæjar sem haldin var þann 27. desember sl. voru afhentar viðurkenningar til íþróttafólks sem þótti standi sig einstaklega vel á árinu 2024. Elín Klara Þorkelsdóttir, var valin íþróttakona Hafnarfjarðar í annað sinn og íþróttakarl Hafnarfjarðar var valinn Daníel Ingi Egilsson.  Elín Klara hefur sýnt að hún er ein besta handknattleikskona landsins. Þá voru þau…

  • Andlátsfrétt

    Látinn er Jón Kr. Jóhannesson, trésmíðameistari. Jón Kr., eins og hann var gjarnan nefndur, var góður og gegn Haukamaður sem unni félagi sínu og var ætíð umhugað um hag þess. Jón Kr. var valinn til trúnaðarstarfa hjá Knattspyrnufélaginu Haukum, sat þar m.a. í varastjórn félagsins og var lengi formaður Öldungaráðs. Jón Kr. var einstaklega nákvæmur…