Afmælishlaup Hauka ….alger metþátttaka!
Afmælisdagurinn 12. apríl rann upp sólríkur og fagur, eins og afmælisdagar eiga að vera.Félagið fagnaði 83 ára afmæli að þessu sinni. Ungt og ferskt félag en um leið félag hokið af reynslu og dásamlegum félögum.Skokkhópur Hauka hafði að venju veg og vanda að afmælishlaupi, þar sem öllum aldurshópum var boðið að hlaupa, sér og öðrum…
