Fjórar Haukastúlkur í æfingahóp U-17

Fjórar Haukastúlkur eru í æfingahóp U-17 í knattspyrnu sem æfir nú um helgina, þær Alexandra Jóhannsdóttir, Katrín Hanna Hauksdóttir, Sæunn Björnsdóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir.

Þær spiluðu m.a. æfingaleik við meistaraflokk Stjörnunnar sem lauk með naumum sigri Stjörnunnar 2-1, en leikið var í Kórnum.

Haukastúlkurnar stóðu sig mjög vel og voru glaðar í lok leiksins eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.hh

 

Katrín Hanna, Þórdís Elva, Sæunn og Alexandra.

Katrín Hanna, Þórdís Elva, Sæunn og Alexandra.