Stórleikur í bikarnum í kvöld

Það verður sannkallaður stórleikur í 16. liða úrslitum Coca-Cola bikars karla þegar að meistaraflokkur karla í handbolta fær ÍR í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30. Leikurinn í kvöld verður þriðji leikur félagana á tímabilinu en áður hafa liðin mæst tvisvar sinnum í deildinni. Liðin mættust fyrst í fyrsta leik tímabilsins í Schenkerhöllinni en þá unnu […]

Haukar – Fjölnir í kvöld kl. 19:30

Það er stutt á milli leikja þessa dagana hjá meistaraflokki kvenna í handbolta en eftir frábæran sigur á Stjörnunni á laugardag mæta stelpurnar Fjölni í kvöld í Schenkerhöllinni kl. 19:30. Fyrir leik kvöldsins eru Haukastelpur í 2. sæti með 15 stig úr 10 leikjum á meðan Fjölnir er í 7. sæti með 4 stig úr […]

Stelpurnar í handboltanum fara af stað á ný

Á morgun, þriðjudag, er komið að því að meistaraflokkur kvenna hefji leik á ný eftir landsliðspásuna sem hefur verið undanfarnar vikur en þá fá þær Gróttu í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 20:00. Liðin hafa mæst einu sinni áður á tímabilinu en þá höfðu Haukastelpur betur í hörkuleik 23-20 eftir að hafa verið yfir í hálfleik […]

Októberfest á föstudaginn

Hin árlega Októberfest verður haldin á Ásvöllum næsta föstudag. Húsið opnar kl. 19:30 og er 20 ára aldurstakmark. Jónsi og Keli stjórna stemmningunni og svo tekur DJ Jón Gestur við og stjórnar stuðinu fram á rauða nótt. Miðasala hefst á Ásvöllum í fyrrmálið, þriðjudag, og það er því um að gera fyrir alla að næla […]

Selfoss kemur í heimsókn

Eftir góðan sigur á Aftureldingu á mánudaginn er komið að næsta leik hjá strákunum í meistaraflokki karla í handbolta þegar að Selfoss kemur í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 19:30 á sunnudaginn. Fyrir leikinn eru Haukamenn í 3. sæti deildarinnnar með 10 stig á meðan Selfoss er í 5. sæti með 8 stig. Eins og fyrr […]

Haukastrákar í landsliðsúrtökum

Það verður mikið um að vera hjá ungum Haukastrákum aðra helgi en þá koma yngri karla landslið Íslands saman. Það eru fjölmargir Haukastrákar sem hafa verið valdnir í þessi verkefni en þeir eru. U-20: Andri Scheving, Jason Guðnason og Orri Freyr Þorkelsson. Auk þess er uppaldni Haukastrákurinn Darri Aronsson sem spila nú með Aalborg Håndbold […]

Herbert kominn til starfa

Herbert Ingi Sigfússon hefur verið ráðinn Viðburðar- og mótsstjóri handknattleiksdeildar Hauka. Herbert lauk masters námi í Sports and Event management í Danmörku í sumar. Herbert er uppalinn Haukamaður og hefur starfað lengi fyrir félagið. Við bjóðum Herbert Inga velkominn til starfa og væntum mikils af honum.

Flottur sigur í Garðabæ

Meistaraflokkur karla fór í gær í fyrsta útileik tímabilsins þegar að þeir héldu í Garðabæinn og léku á móti Stjörnunni. Fyrir leikinn voru bæði lið með 4 stig úr 3 leikjum og liðunum var spáð á svipuðum stað í deildinni fyrir tímabilið. Því var búist við hökuleik milli tveggja góðra liða. Haukmenn tóku frumkvæðið eftir […]