Haukar Íslandsmeistarar í Utandeild karla

Utandeildarlið Hauka í handbolta karla varð um helgina Íslandsmeistari Utandeildarliða eftir dramatískan sigur á liði Kórdrengja 28 – 27. Liðið varð í 4. sæti deildarinnar og var því síðasta liðið inn í úrslitin en í undanúrslitum slógu strákarnir út deildarmeistara Vals eftir hörkuleik 28 – 26. Í úrslitaleiknum mættu þeir svo liði Kórdrengja sem lenti […]

Stelpurnar úr leik

Meistaraflokkur kvenna í handbolta lauk leik í gær í Íslandsmótinu þegar að þær töpuðu 25 – 22 fyrir Val í þriðja leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann alla 3 leikina þrátt fyrir hetjulega baráttu stelpnanna en í öllum leikjunum náðu þær að halda Valsliðinu í 25 mörkum eða minna. Það var því sóknarleikurinn […]

Fyrsti heimaleikur í úrslitakeppninni

Meistaraflokkur kvenna í handbolta leikur í kvöld sinn fyrsta heimaleik í úrslitakeppninni þegar að þær fá Val í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 20:00. Þetta er 2. leikur liðanna í einvíginu en Valskonur unnu fyrsta leik liðinna á laugardaginn 24 – 19 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 12 – 6. Í þeim leik var […]

Gullhátíð á dag – Meistarflokkur kvenna hefur leik í úrslitakeppni

Það verður sannkallaður handboltadagur í dag, laugardag, hjá meistaraflokkum Hauka. Meistaraflokkur kvenna byrjar fjörið þegar að þær leika sinn fyrsta leik í úrslitakeppninni þegar að þær halda í Origo-höllina á Hlíðarenda og spila þar við Val kl. 14:00. Það verður mikið um að vera hjá Haukafólkinn því að í Schenkerhöllinni verður svo sannkölluð gullhátíð í […]

Haukastelpur í yngri landsliðum Íslands í handbolta

Það hefur verið mikið um að vera hjá yngri landsliðum Íslands í handbolta en í lok mars æfðu eldri yngri landsliðin og svo rétt fyrir páska æfa yngstu yngri landsliðin. Að vanda áttu Haukar sína fulltrúa en í U-19 voru þær Alexandra Líf Arnarsdóttir og Berta Rut Harðardóttir en báðar eru þær í lykilhlutverkum í […]

Haukar deildarmeistarar í Olísdeild karla!

Meistaraflokkur karla tryggði sér í gær deildarmeistaratitilinn í Olísdeild karla með því að gera jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum 27 – 27. Með þessu jafntefli eru Haukar með 34 stig með 2 stiga forskot á Selfoss þegar að 1 leikur er eftir af deildarkeppninni. Selfoss getur bara náð Haukum að stigum en þar sem að […]

Haukastrákar í handboltalandsliðum Íslands

Nokkrir ungir Haukastrákar hafa fengið þann heiður að vera valdir í úrtakshópa yngri landsliða Íslands í handbolta þegar að liðin koma saman á komandi vikum. Öll yngri landslið karla ásamt A-landsliðin verða við æfingar. Í U-15 ára landsliðinu eiga Haukar 3 fulltrúa en það eru þeir Andri Fannar Elísson, Atli Steinn Arnarson og Össur Haraldsson. […]

Síðasti deildarleikurinn hjá stelpunum

Það er komið að úrslitastundu í deildarkeppninni hjá stelpunum í Olís deild kvenna þegar að síðasta umferðin fer fram í Schenkerhöllinni kl. 19.30. Mótherjinn í kvöld er ÍBV og má búast við hörkuleik því liðin eru í harðri baráttu um 3. sætið í deildinni en fyrir umferðina er ÍBV í 3. sætinu með 25 stig […]

Góður hagur

Fjölmennur aðalfundur félagsins var haldinn nýlega í Samkomusalnum. Fram kom í ársskýrslu að hagur félagsins er með miklum ágætum, – öflugt, vaxandi íþróttastarf og gróskumikið félagsstarf. Miklar vonir eru bundnar við byggingu knatthúss af bestu gerð. Stjórn félagsins er þannig skipuð næsta starfsár: Formaður Samúel Guðmundsson, varaformaður Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri Guðborg Halldórsdóttir – aðrir í […]