Takk Hanna

Handknattleiksdeild Hauka þakkar Hönnu G. Stefánsdóttur fyrir samstarfið síðustu árin. Árangur Hönnu er skýrt dæmi um gott samstarf leikmanns og félags. Haukar hafa í gegnum tíðina getað státað sig að markvissri þjálfun og uppeldisstarfi fyrir afreksfólk í handbolta eins og dæmin sanna. Við óskum Hönnu velfarnaðar á nýjum vettvangi.

U-16 landslið karla

Tveir ungir og efnilegir strákar úr Haukum eru valdir í æfingarhóp u-16 landsliði Íslans. Það eru þeir Adam Haukur Baumruk og Sigurður Njálsson. Hauka eru stoltir af strákunum og óskum þeim til hamingju. Hópurinn er eftirfarandi: Adam Haukur Baumruk Haukar, Alex Viktor Ragnarsson Grótta, Alexander Örn Júlíusson Valur, Andri Helgason ÍR, Arnar Snær Magnússon Fram, […]

Hanna og Birkir Ívar kjörin best

Á lokahófi handknattleiksdeildar Hauka voru veittar viðurkenningar til leikmanna í meistaraflokkum félagsins og 2. fl. karla. Hanna Guðrún Stefánsdóttir var kjörin besti leikmaður meistaraflokks kvenna og Birkir Ívar Guðmundsson besti leikmaður meistaraflokks karla. Erla Eiríksdóttir var kjörinn bjartasta vonin í m.fl. kvenna og Aron Rafn Eðvarðsson í m.fl. karla. Hér að neðan má sjá yfirlit […]

Ræða á lokahófi handknattleiksdeildar Hauka

Lokahóf handknattleiksdeildar Hauka fór fram 12. maí síðastliðinn. Þorvarður Tjörvi Ólafsson, þáverandi formaður handknattleiksdeildar Hauka, flutti eftirfarandi ræðu við það tilefni: Kæru Haukafélagar! Eins og við sjáum glöggt þá hefur birtan heldur betur færst í aukana undanfarna daga og veturinn víkur nú fyrir vorinu og sumrinu. Eins og jafnan á þessum árstíðarskiptum söfnumst við Haukafólk […]

Gísli Guðmundsson ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og markmannsþjálfari félagsins

Gísli Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í handknattleik auk þess að annast markmannsþjálfun í meistaraflokkum og yngri flokkum félagsins. Gísli Guðmundsson er því kominn aftur í raðir Hauka eftir skamma veru á Seltjarnarnesi. Það er mikill fengur fyrir félagið að fá Gísla aftur til starfa enda þekkjum við vel til verka hans og vitum hversu […]

Sveinn Þorgeirsson gengur til liðs við Hauka

Sveinn Þorgeirsson, skytta úr Víkingi, hefur gengið til liðs við Íslandsmeistara Hauka. Sveinn er 23 ára og er uppalinn Fjölnismaður. Sveinn var markahæsti leikmaður Víkings á nýliðinni leiktíð með tæp hundrað mörk. Hann er öflugur varnarmaður og sterkur karakter innan vallar sem utan. Sveinn styrkir því lið Hauka fyrir baráttuna á komandi leiktíð, jafnt í deildinni hér heima og utan landsteinanna þar […]

2. flokkur Íslandsmeistari í handknattleik

Síðastliðin föstudag varð 2. flokkur karla Íslandsmeistarar þegar „strákarnir okkar“ unnu Akureyri 30 – 29 í afar spennandi leik í Austurbergi þar sem Aron Rafn tryggði sigur Hauka með að verja vítakast þegar leiktíminn var útrunnin. Strákarnir urðu einnig deildarmeistarar og unnu svo FH í undanúrslitum í æsispennandi leik með einu marki. Þetta er fyrsti […]

Nú verða allir að mæta í Austurberg kl: 16:30 föstudaginn 14. maí

Loksins eftir að „stóra ljósaperumálinu“ lauk verður spilaður úrslitaleikurinn í 2. fl. karla um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Leikurinn fer fram í Austurbergi föstudaginn 14. maí og hefst kl 16:30. Eins og allir Haukamenn vita skiptir stuðningur áhorfenda miklu máli eins og sást svo vel í úrslitarimmunni í meistarflokki karla. Sköpum stuð og stemmningu á pöllunum og hvetjum strákana til sigurs. Áfram […]

Gullhátíð Hauka – Lokahóf handknattleiksdeildar 12. maí

Einu glæsilegasta handknattleikstímabili Hauka er nýlokið. Á morgun, miðvikudaginn 12. maí, ætlar Haukafólk að koma saman að Ásvöllum og fagna árangrinum á GULLHÁTÍÐ HAUKA – lokahófi handknattleiksdeildar. Á hófinu verður farið yfir árangurinn í vetur í máli og myndum, veittar verða viðurkenningar og dansað fram á rauða nótt. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:30. […]