HM leikir Íslands á stóru tjaldi á Ásvöllum

HM í handbolta hefst næstkomandi fimmtudag en Ísland spilar sinn fyrsta leik á föstudaginn 14. jan. kl. 16.00. Allir leikirnir verða sýndir á stóru tjaldi á Ásvöllum og tilvalið er fyrir Haukafólk að mæta og horfa á leikina saman. Léttar veitingar og rjúkandi pizzusneiðar verða til sölu. Leikir Íslands í riðli: Leikur 1. Föstudagur 14. janúar.  Ísland […]

Skrifað undir leikmannasamninga við glæsilegt íþróttafólk

Það er sannkölluð gróska í starfinu hjá Haukum og upp úr grasrótinni spretta flottir íþróttamenn. Um áramótin var skrifað undir leikmannasamninga við hóp af ungum og efnilegum fótbolta – og handboltakrökkum. Það var létt yfir hópnum eins og sést á myndinni 🙂 Eftir að undirritaðir höfðu verið samningar við þennan glæsilega hóp var komið að því að […]

Afreksfólk verðlaunað á vel heppnaðri krýningarhátíð á gamlársdag

Í hádeginu á gamlársdag var samankominn föngulegur hópur í samkomusal okkar Haukamanna að Ásvöllum er árleg krýningarhátið Hauka fór fram. Hápunktur hennar var krýning á íþróttamanni, íþróttakonu og þjálfara ársins 2010 en þetta var í fyrsta skiptið sem þjálfari ársins var verðlaunaður á þessari hátíð sem var haldin í 16. sinn.         Þeir sem útnefndir […]

Flugfélags Íslands Deildarbikarinn 2010

Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin 3 ár. Í ár líkt og í fyrra ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn. 4 efstu lið í N1 deildum karla og kvenna fara í keppnina og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu […]

25 ára gott samstarf innsiglað áfram

Í gærkvöldi, fyrir stórleik Hauka og Akureyrar, var skrifað undir nýjan samning á milli Byr og Hauka. Ásdís Garðarsdóttir, útibústjóri hjá Byr Strandgötu, sagði að því tilefni að það væri ánægjulegt að halda upp á 25 ára samstarfsafmæli við Hauka (Sparisjóður Hafnarfjarðar síðan Byr) með nýjum samningi. Valdimar Óskarsson, formaður hkd Hauka, sagði að þessu tilefni að […]

Stórleikur í handbolta, heimaleikur gegn Akureyri í N1 deildinni

Meistaraflokkur karla í handknattleik þarf að taka á honum stóra sínum þegar það fær til sín topplið Akureyrar í heimsókn á Ásvelli í kvöld  kl. 18.30. Haukar sitja í 4. sæti deildarinnar með 12 stig en Akureyri er með 18 í því 1. “Þetta er lykilleikur til að tryggja okkur í eitt af fjórum efstu […]

Haukar og Byr skrifa undir nýjan samning

Fréttatilkynning Byr hefur um margra ára skeið verið aðalstyrktaraðili handknattleiksdeildar Hauka. Samstarfið hefur verið mjög gott og hafa Haukar í handknattleik verið í fremstu röð í samvinnu við Byr. Byr er virkur þátttakandi í íslensku samfélagi og leggur áherslu á að styrkja góð og uppbyggileg verkefni sem stuðla að heilbrigðum lífsstíl allra aldurshópa. Nú er […]

Heimaleikur í handboltanum í kvöld kl. 19:30

Í kvöld taka strákarnir í mfl. karla í handbolta á móti liði Aftureldingar. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og er á heimavelli okkar, Ásvöllum.  Síðasti leikur þessara liða var 14. okt. s.l. að Varmá. Sá leikur var hörkuspennandi og réðust úrslitin á síðustu sekúndum leiksins en leikurinn endaði 22-23 fyrir Hauka. Segja má að leikmenn Aftureldingar, […]

3 Haukamenn í U21 hóp Íslands

Þjálfarar U-21 árs liðs karla í handbolta, þeir Einar Guðmundsson og Einar Andri Einarsson hafa valið 18 manna æfingahóp sem mun leika þrjá vináttulandsleiki í desember. Leikirnir fara fram 18.-20. desember og eru allir gegn Noregi.  Í hópnum eru þrír Haukamenn þeir Guðmundur Árni Ólafsson, Heimir Óli Heimisson og Stefán Rafn Sigurmannsson. Leikirnir eru liður […]

Birkir Ívar í landsliðið

Birkir Ívar var valinn í Íslenska landsliðið. Það er kominn tími til að þessi snillingur fái tækifæri með liðinu. Birkir Ívar hefur verið besti markvörður deildarinnar mörg undanfarin ár og ótrúlegt hversu oft gengið hefur verið fram hjá honum þegar valið er í hópinn. Við óskum þessum öldung til hamingju. Hópurinn: Markmenn:Birkir Ívar Guðmundsson – […]