Næstu leikir hjá Haukum í handbolta

Mfl. karla í handbolta: * Haukar – Valur. Ásvellir, fimmtudaginn 7. apríl kl. 19.30 (lokaleikur deildarkeppninnar hjá Haukastrákunum) Meistaraflokkur kvenna hefur lokið keppni í N1 deildinni þetta tímabilið.  

Góugleði á Ásvöllum á morgun

Handknattleiksdeildin ætlar að efna til Góugleði á morgun laugardaginn 12. mars n.k. í veislusalnum á Ásvöllum. Verð kr. 1.500 pr. mann með mat. Stelpurnar eiga leik þennan dag við ÍR og á leiknum byrjar fjörið. Eftir leikinn verður salurinn niðri opnaður og þar verður tilkynnt um mann leiksins samkvæmt vali Hauka í horni. Matur hefst kl. […]

Strákarnir heimsækja Aftureldingu

Meistaraflokkur karla í handknattleik sækir nýliðana úr Aftureldingu heim að Varmá í kvöld en leikurinn hefst klukkan 19:30. Afturelding hefur komið skemmtilega á óvart í undanförnum leikjum og í síðustu umferð sigruðu þeir sterkt lið Fram. Það er ljóst að Afturelding er ekki búið að segja sitt síðasta í deildinni og þurfa strákarnir að mæta vel einbeittir […]

Fréttatilkynning frá handknattleiksdeild

Stjórn handknattleiksdeildar Hauka hefur ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi við þjálfara meistaraflokks karla, Halldór Ingólfsson. Það var samkomulag á milli handknattleiks­deildar Hauka og Halldórs að hann léti nú þegar af störfum. Haukar vilja þakka Halldóri fyrir samstarfið og óska honum alls hins besta.Náðst hefur samkomulag við Gunnar Berg Viktorsson um að hann taki […]

Vel heppnaðar heimsóknir í grunnskóla

Í kringum heimsmeistaramótið í handbolta var farið í heimsóknir í nokkra skóla til að ræða við yngri kynslóðina um gildi íþrótta, hvernig það væri að alast upp í Haukum og hvernig álagið væri fyrir leikmenn á stórmótum eins og nýliðnu heimsmeistaramóti. Þeir skólar sem við heimsóttum voru:Hraunvallaskóla (heimsóttum 1.-7. bekk), Hvaleyrarskóla (heimsóttum 5.-7. bekk) og […]

Selfoss – Haukar í kvöld kl. 19.30, rúta frá Ásvöllum

Haukaliðið í handbolta karla vann góðan 5 marka útisigur síðasta leik. Fín mæting var á leikinn og vel heyrðist í Haukafólki. Strákarnir eru sem stendur í 5. sæti með 16 stig, einu stigi á eftir FH sem er í 4. sæti og tveimur á eftir HK sem vermir 3. sætið.Næsti leikur er í kvöld á Selfossi […]

Salou Cup – Spánn 30.06.11 – 03.07.11

Haukar eru eina íslenska liðið sem hefur fengið boð um að taka þátt í sterku móti í bænum Salou (nágrenni Barcelona) á Spáni í sumar. Mótið er ætlað strákum fæddum 1995. Boðið kemur frá Andrey Xepkin, fyrrum leikmanni Barcelona og núverandi þjálfara 16 ára liðs þeirra. Xepkin var afar farsæll leikmaður og væri of langt að telja […]

Flottur karakter í Haukaliðinu í kvöld

Haukar gerðu góða ferð í Safamýrina í kvöld og innbyrtu flottan 5 marka sigur, 28 – 33 (13 -18 í hálfleik). Það var ljóst frá fyrstu mínútu að okkar menn ætluðu að selja sig dýrt og þeir börðust eins og ljón í vörninni og sókninni var Björgvin Hólmgeirsson í miklu stuði eftir að hafa tekið […]

Haukatap gegn HK í hörkuleik

Í gærkvöldi fengu Haukar lið HK í heimsókn á Ásvelli. Liðin voru fyrir leikinn í 4. og 5. sæti bæði með 14 stig og því leikurinn mjög mikilvægur því fjögur efstu sætinn gefa rétt til að spila um Íslandsmeistaratitilinn í lok móts. Þetta var 13. umferð mótsins af 21. Lið Hauka barðist allan leikinn hetjulega […]