Silja Ísberg til Hauka

Silja Ísberg hefur gengið frá tveggja ára samning við Handknattleiksdeild Hauka.  Silja er uppalin í ÍR en hefur fundið sér nýtt lið þar sem ÍR hefur dregið sig út úr N1 deild kvenna að sinni.  Silja er öflugur leikmaður sem á fjölda landsleikja að baki með yngri landsliðunum.  Silja hefur lengst af leikið sem vinstri hornamaður.  […]

Uppskeruhátíð yngri flokka í handbolta hjá Haukum 2010-2011

Uppskeruhátíð yngri flokka í handknattleiksdeild Hauka fór fram á Ásvöllum miðvikudaginn 18. maí  s.l.  Fjölmennt var á hátíðinni og mættu þar rúmlega 500 manns til að samgleðjast með handboltafólki framtíðarinnar og frábærum árangri þeirra á starfsárinu. Í lok uppskeruhátíðarinnar var síðan boðið upp á pylsu (pulsu) veislu í boði GOÐA og er þeim færðar okkar […]

Til Hauka frá Molde í Noregi

Halldór Harri Kristjánsson  hefur ákveðið að ganga til liðs við handknatttleiksdeild Hauka  og taka þátt í uppbyggingarstarfi félagsins.  Halldór oftast kallaður Harri hefur mikla reynslu í  þjálfun og hefur síðustu 3 árin þjálfað Molde í Noregi.  Harri verður hluti af þjálfarateymi mfl. kvenna ásamt Einari Jónssyni aðalþjálfara liðsins.  Ásamt þjálfun í meistaraflokki mun Harri stýra […]

Fín stemmning á uppskeruhátíð handknattleiksdeildar

Síðastliðinn laugardag, 14. maí, var haldinn uppskeruhátið handknattleiksdeildarinnar. Hátíðin heppnaðist ljómandi vel en hún litaðist aðeins af miklum Eurovision áhuga. Flottur matur var í boði frá Saffran og seinna um kvöldið fór fram verðlaunaafhending. Þeir sem fengu verðlaun voru: Meistaraflokkur karla:* Besti leikmaður, Freyr Brynjarsson* Bjartasta vonin, Tjörvi Þorgeirsson* Besti leikmaðurinn samkvæmt vali Hauka í […]

Lokahóf Handknattleiksdeildar Hauka næstkomandi laugardag

Á næsta laugardag, 14. maí, verður haldið lokahóf handknattleiksdeildar Hauka. Húsið opnar kl 18:15.  Það verður að sjálfsögðu Eurovision stemmning í húsinu og hægt verður að fylgjast með keppninni á stórum skjá. Borðhald hefst kl 20:30 og verða það kokkarnir frá Saffran sem elda ofan í okkur dýrindis rétti.Leikmenn verða heiðraðir og svo verður dansað […]

Bryndís markvörður framlengir samning sinn við Hauka

Bryndís Jónsdóttir, sem staðið hefur á milli stanganna hjá kvennaliði hkd Hauka, hefur framlengt samning við félagið um tvö ár. Bryndis sem er einn allra besti markvörður landsins er uppalin hjá Haukum og hefur verið einn af máttastólpunum í liði meistaraflokks kvenna undanfarin ár. Bryndís er að að jafna sig eftir meiðsli frá síðasta tímabili […]

Gullið í hús – framtíðin er björt

Fyrr í dag var leikinn úrslitaleikurinn hjá 2. flokki á Íslandsmótinu í handbolta. Fór leikurinn fram í Víkinni og eiga áhorfendur hrós skilið fyrir góða mætingu og fína stemmningu. Haukastrákarnir mættu liði Akureyrar og sýndu allar sínar bestu hliðar. Í fyrrhálfleik var staðan 18 – 12 fyrir Hauka og var þetta forskot mikið til að […]

Leikurinn um gullið hjá 2. flokki á morgun

Á morgun, laugardag, geta strákarnir úr 2. flokki í handboltanum tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn 2011. Mótherjar Hauka er lið Akureyrar en í báðum liðunun er töluvert af leikmönnum sem hafa verið að leika með meistaraflokki. Það má búast við hörkuleik og við skorum á Haukafólk að mæta á pallana og hvetja okkar stráka til sigurs.Leikurinn er […]

Góður árangur hjá 6. flokki kvenna í handboltanum

Um helgina 29. apríl – 1. maí fóru stelpurnar í 6. flokki kvenna í handboltanum til Vestmannaeyja til að keppa. A liðið vann sinn riðil og B liðið stóð sig líka með prýði. Stelpurnar voru flottir fulltrúar Hauka og voru til fyrirmyndar í alla staði. Áfram Haukar!

Albert Sigurðsson 60 ára í dag

Góður Haukafélagi, Albert Sigurðsson (Alli málari), er 60 ára í dag. Haukar óska kappanum innilega til hamingju með daginn og vona að hann eigi eftir að njóta hans vel.