Halldór Harri og Gísli stjórna meistaraflokk kvenna

Handknattleiksdeild Hauka samdi á vormánuðum við Halldór Harra Kristjánsson um stýra kvenna liði félagsins næstu tvö árin. Halldór Harri hefur mikla reynslu af þjálfun úr íslensku og norsku úrvaldeildinni en hann kom til félgasins frá Moldö síðasta sumar og tók að sér þjálfun yngri flokka auk þessa að vera aðstoðarþjálfari í meistarfokk kvenna. Gísli Guðmundsson […]

Heimir Óli til Giuf

Heimir Óli Heimisson, Haukamaður og einn af efnilegustu handbotlamönnum landsins hefur ákveð að yfirgefa Hauka og halda á vit ævintýranna í atvinnumennsku í Svíþjóð. Heimir hefur gert tveggja ára samning við Giuf sem þjálfað er af Íslendingnum Kristjáni Andréssyni, sem er sonur, Andrésar Kristjánssonar uppalinns Haukamanns er lék með liðinu fyrr á árum. Við Haukafólk […]

Haukar fengu viðurkenningar á lokahófi HSÍ

Haukar voru sigursælir á lokahófi HSÍ sem fram fór um síðast liðna helgi. Aron Kristjánsson, þjálfari liðsins var valinn þjálfari ársins. Aron Rafn Eðvarðsson var valin markvörður ársins og Matthías Árni Ingimarsson var kosinn varnarmaður ársins. Þá var Gylfi Gylfason í liði ársins í N1-deildinni. Óskum við þeim til hamingju með viðurkenningarnar! 

Sigurbergur Sveinsson kominn heim í Hauka

Í gær skrifaði Sigurbergur Sveinsson, landsliðsmaður í handknattleik undir tveggja ára samning við Hauka.Sigurbergur er okkur hjá Haukum að góðu kunnur enda uppalinn hjá félaginu.   Það er mikið fagnaðarefni og mikill fengur að fá Sigurberg aftur í raðir okkar Haukanna og bjóðumv við hann velkominn til leiks.   

Lokahóf handknattleiksdeildarinnar

Í kvöld föstudagskvöldið, 11. maí, verður haldið lokahóf handknattleiksdeildar Hauka. Húsið opnar kl. 19:23 og að sjálfsögðu verðum við þar sem hlutirnir gerast þ.e. í íþróttasalnum sjálfum.  Borðhald hefst kl 20:13 og munu kokkarnir Hallgrímur og Ormur grilla ofan í liðið meðan maga-rými leyfir. Leikmenn verða heiðraðir og svo verður dansað fram á næsta dag. Allir […]

Frábærar fréttir – fjölmargir leikmenn skrifa undir nýjan samning!

Nokkrir af lykilmönnum handknattleiksdeildar Hauka hafa framlengt samninga við félagið til vors 2014. Það eru þeir Sveinn Þorgeirsson, Freyr Brynjarsson, Aron Rafn Eðvarðsson, Tjörvi Þorgeirsson, Matthías Ingimarsson og Stefán Rafn Sigurmannsson. Karlalið Hauka átti frábæran vetur og liðið landaði þremur af þeim fjórum titlum sem í boði voru.  Haukar munu halda nær öllum sínum leikmönnum […]

Úrslit yngriflokka uptökur

Uptökur frá úrslitum yngriflokka.             4.flokkur kvk B lið http://www.youtube.com/watch?v=q0ox97P9YqA 4.flokkur kk B lið http://www.youtube.com/watch?v=GjKdtdJYN-0  4. flokkur kvk A lið  http://www.youtube.com/watch?v=XaB-67yFDbs  http://www.youtube.com/watch?v=w1AAczaK5Fc 4.flokkur kk A lið  http://www.youtube.com/watch?v=dP3zvW8LXko 3.flokkur kvk  http://www.youtube.com/watch?v=hx2hPH28kmI http://www.youtube.com/watch?v=BQt9OeK1HJE    3.flokkur kk  http://www.youtube.com/watch?v=lhy2GLA-zbs  http://www.youtube.com/watch?v=iTO13wVtT5k 2.flokkur kk  http://www.youtube.com/watch?v=k4gQm5otCjQ  http://www.youtube.com/watch?v=MwUzpnO1-HE  http://www.youtube.com/watch?v=2pcQU1HjA0c    

Lokahóf Handknattleiksdeildar Hauka

Í kvöld föstudagskvöldið, 11. maí, verður haldið lokahóf handknattleiksdeildar Hauka. Húsið opnar kl. 19:23 og að sjálfsögðu verðum við þar sem hlutirnir gerast þ.e. í íþróttasalnum sjálfum.  Borðhald hefst kl 20:13 og munu kokkarnir Hallgrímur og Ormur grilla ofan í liðið meðan maga-rými leyfir. Leikmenn verða heiðraðir og svo verður dansað fram á næsta dag. Allir […]

Haukar fá liðsstyrk í handboltanum

Haukar hafa fengið mikin liðsstyrk í meistaraflokk karla í handbolta en þeir Elías Már Halldórsson og Jón Þorbjörn Jóhannsson hafa ákveðið að ganga til liðs við Hauka og spila með liðinu á næsta tímabili.  Elías Már Halldórsson er á leið aftur til landsins eftir tvö góð ár í Norsku deildinni.  Elías hefur gert samning um […]

Unglingaflokkur kvenna Íslandsmeistari!

Unglingaflokkur kvenna varð um helgina Íslandsmeistari í handknattleik eftir sigur á Fylki 28-24 en leikið var í Schenkerhöllinni á Ásvöllum. Haukastelpurnar höfðu yfirhöndina allan leikinn og varð leikurinn í raun aldrei neitt spennandi þrátt fyrir að stúlkurnar úr Árbæ gæfust aldrei upp. Okkar stelpur geta svo sannarlega verið ánægðar með veturinn þar sem þær unnu […]