Björgvin valinn knattspyrnumaður Hauka 2015

Lokahóf knattspyrnudeildar Hauka var haldið á laugardagskvöldið með pompi og prakt þar sem leikmenn, þjálfarar og stuðningsfólk fögnuðu árangri sumarsins. Hildigunnur Ólafsdóttir var valin besti leikmaður meistaraflokks kvenna og Katrín Hanna Hauksdóttir var valin sú efnilegasta en hún spilar með 3. flokki Haukum en tók að sér markmannsstöðuna vegna meiðsla.

Björgvin Stefánsson var valinn besti leikmaður meistaraflokks karla og Knattspyrnumaður Hauka 2015 en hann var einnig markahæsti leikmaður 1. deildar í sumar. Daníel Snorri Guðlaugsson var valinn efnilegasti leikmaður meistaraflokks karla en hann vakti mikla athygli fyrir stöðuleika og baráttu en hann var að stíga sín fyrstu spor í meistaraflokki.

Björgvin 2015

Björgvin var valinn knattspyrnumaður Hauka.

Best 2015

Björgvin og Hildigunnur voru valin bestu leikmennirnir.

Efnilegust 2015

Katrín og Daníel voru valin efnilegust.