Æfingar hefjast aftur 4.maí

Kæra Haukafólk.
Eins og flestum er eflaust kunnugt um mun íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri hefjast af krafti þann 4. maí. Íþróttastarf fullorðinna hefst einnig þann dag en með takmörkunum. Við hlökkum til að taka á móti iðkendum okkar í öllum deildum á nýjan leik. Í einhverjum tilvikum verða lítilsháttar breytingar á æfingatímum og eru þær breytingar kynntar sérstaklega á samskiptasíðum þeirra flokka/deilda sem það á við um. Við viljum vekja athygli á því að enn miðast samkomubann við 50 einstaklinga og ávallt skal virða reglu um tvo metra milli fullorðinna. Við beinum því þeim tilmælum til foreldra og forráðamanna barna á grunnskólaaldri að mæta EKKI með börnum sínum á æfingar nema nauðsyn beri til. Telji einhver þörf á því að fylgja barni sínu skal tilkynna það til viðkomandi þjálfara. Forráðamenn barna á leikskólaaldri fá nánari fyrirmæli frá þjálfurum varðandi tilhögun hjá þeim aldurshópi. Við höldum áfram að vanda okkur og fara varlega.
Áfram Haukar.