Skákæfing 20. mars 2007

Sverrir Þorgeirsson vann verðskuldaðan sigur á skákæfingunni síðastliðið þriðjudagskvöld. Sverrir hlaut 13,5 vinning í 15 skákum. Það var Páll Sigurðsson sem kom réttlætinu til bjargar í síðustu umferð með því að leggja Varða að velli, en algjör slembilukka hafði fylgt Varða allt mótið.

Daníel þurfti því miður frá að hverfa stuttu eftir að mótið hófst og vorum við í kjölfarið í hinu mesta basli með að para saman í hverri umferð. Þetta hafðist þó að lokum.

Lokastaðan:

1.Sverrir Þorgeirsson 13,5v. af 15

2.Þorvarður Fannar 13

3.Páll Sigurðsson 11,5

4-6.Ingi Tandri 10,5
4-6.Stefán Pétursson 10,5
4-6.Auðbergur Magnússon 10,5

7.Jón Magnússon 9,5

8.Gísli Hrafnkelsson 8

9.Marteinn Harðarson 7,5

10.Geir Guðbrandsson 7

11.Ragnar Árnason 6,5

12.Sverrir Gunnarsson 3,5

13-14.Rúnar Jónsson 3
13-14.Magnús (bróðir Jóns) 3

15.Daníel Pétursson 1

16.Skotta 0