Haukamenn verða í góðri æfingu fyrir Íslandsmót skákfélaga, ekki ber á öðru. Á Skákþingi Reykjavíkur rekur hver snilldin aðra. Stefán Freyr vann Björn Þorfinnsson nánast áreynslulaust, Varði tók fyrrv. Haukamanninn Benedikt Jónasson í bakaríið. Benni hefur greinilega látið á sjá síðan hann sneri aftur í TR, en er óstöðvandi á góðum degi. Stefán Freyr mátti síðan lúta í gras, eftir að hafa orðið fyrir hnjaski gegn Stefáni Kristjánssyni. Hugsanlega hefur liturinn á treyjunni, sem hann bar um daginn, haft slæm áhrif á SFG. Sverrir Þorgeirsson gerði síðan jafntefli gegn Benna Jónasar í gær. Greinilegt að Benni á erfitt með að tefla gegn Haukamönnum.
En skák kvöldsins var fórnarskák Varða gegn Sigurði Daða. Nágrannaslagur, enda býr Daði í úthverfi Hafnarfjarðar. Um hana má lesa á Skákhorninu. En þarna tefldi Varði sennilega sína bestu kappskák, hingað til a.m.k.
Varði hefur fullt hús, 4 vinninga, Stefán Freyr 3, en aðrir minna, ef ég man rétt.
Um úrslit í öðrum skákum Haukamanna og stöðuna má sjá á www.skak.is
SGB