Jæja, þá er loks komið að því að skoða lausnina á annarri þrautinni. Ef við hugsum okkur að svartur eigi leik í stöðunni, þá er hann í leikþröng! Hans skástu leikir yrðu að leika hrók sínum full langt frá eigin kóngi, þar sem hann á endanum yrði skákaður af.
Vinningsleið hvíts byggist því einfaldlega á því að ná upp þessari sömu stöðu og láta svartan eiga leikinn! Þessu er komið í framkvæmd með skemmtilegri þríhyrningstilfærslu.
1.Dd5+-Kh7 2.Dh1+-Kg8 3.Dh5
Svartur kemst nú ekki hjá því að tapa hróknum.
T.d.:
a) 3.-Ha7 4.Dg4+-Kh8 5.Dh3+-Kg8 (5.-Hh7 6.Dc8#) 6.Dg3+-Kh7 7.Dh2+-Kg8 8.Dg1+ og vinnur hrókinn.
b) 3. Hg1 4.De8+-Kh7 5.Dd7+-Kg8 6.Dc8+-Kh7 7.Dc7+-Kg8 8.Db8+-Kh7 9.Da7+ og vinnur hrókinn.
Ef þið sjáið engan rakinn vinning, neyðið þá bara andstæðinginn til að leika af sér! 😉