Skákæfing 8.febrúar 2005

Skákæfingin í gærkveldi var bæði fjölmenn og sterk. Þátttakendur voru 18 og var teflt 9 umferða monrad með tvöfaldri umferð. Flestir voru sáttir við þetta fyrirkomulag, en þarna eru menn yfirleitt að tefla við verðuga andstæðinga, auk þess að fá tækifæri til að hefna eftir tap. 🙂 Undirritaður náði þeim frábæra árangri að sigra á æfingunni, en þeir Heimir, sem leiddi mótið lengi vel, og Stefán Freyr voru ekki langt undan. Ekki voru þó allir sigrar Varða sannfærandi. T.a.m. var hann stálheppinn á móti þeim feðgum Jóni og Rögnvaldi.

1. Þorvarður Fannar 15,5 af 18

2. Heimir Ásgeirsson 14,5

3. Stefán Freyr 14

4. Jón Magnússon 10

5-7. Auðbergur Magnússon
Páll Sigurðsson
Stefán Pétursson 9,5

8-11. Sigurður Sverrisson
Sverrir Þorgeirsson
Rögnvaldur Jónsson
Ingi Tandri 9

12. Árni Þorvaldsson 8,5

13. Guðmundur Guðmundsson 8

14. Grímur Ársælsson 7,5

15. Arnar Jónsson 7

16. Brynjar Ísak Arnarsson 5

17. Sverrir Gunnarsson 3,5 (þurfti að fara eftir 6.umferð).

18. Rúnar Jónsson 3