Heimir og Þorvarður urðu efstir og jafnir á skákæfingunni síðastliðið þriðjudagskvöld. Þátttakendur voru 14. Þar sem Heimir bar sigurorð af Þorvarði í innbyrðisviðureign þeirra, mætti svo sem færa rök fyrir því að hann yrði skrifaður á undan í lokastöðunni. Í ljósi mikilla yfirburða Heimis á æfingum í vetur, krafðist Þorvarður hins vegar þess að varpa skyldi hlutkesti um það hvor skrifaður yrði á undan. Svo fór að Varði vann hlutkestið og „trónir því á toppnum!“.
1-2. Þorvarður Fannar
Heimir Ásgeirsson 11,5 af 13.
3-4. Jón Magnússon
Stefán Freyr 10
5-7. Sverrir Þorgeirsson
Stefán Pétursson
Ingi Tandri Traustason 9
8. Grímur Ársælsson 6
9-10. Baldur Snæhólm
Sverrir (eldri) 4
11. Geir 3
12. Kristján Sigurðsson 2
13. Herbert 1
14. Rúnar Jónsson 0
Að lokum var tekin liðakeppni. Liðin voru skipuð eftirfarandi skákmönnum:
Lið-A: Varði, Jón M., Kristján, Rúnar.
Lið-B: Heimir, Ingi, Geir, Herbert.
Þetta var æsispennandi keppni sem lauk með sigri B-liðsins 7,5 – 8,5.