Boðsmótinu lauk um helgina, ein umferð var tefld á fimmtudag og föstudag. Svo lauk mótinu með 2 umferðum á laugardag. Sigurbjörn vann A-flokkinn, Árni B-flokkinn og Sverrir vann C-flokkinn.
A-flokkur:
í 6. umferð sigraði Sigurbjörn Heimi og tryggði sér þar með sigur í mótinu.
Úrslit:
Heimir-Sigurbjörn: 0-1
Stefán Freyr-Jóhann Helgi: 0-1
Þorvarður-Páll: 1-0
Sverrir-Sigurður: 0,5-0,5
Staðan fyrir síðustu umferð:
Sigurbjörn 6
Stefán Freyr 3,5
Jóhann Helgi 3,5
Heimir 3
Sverrir Örn 3
Sigurður 2,5
Þorvarður 2
Páll 0,5
Þetta þýddi það að 5 manns áttu möguleika á verðlaunasæti, en Sigurbjörn hafði tryggt sér sigur.
Sigurður hafði góðan sigur á Páli og náði þar með 50% árangri sem er mjög vel að verki staðið hjá næststigalægsta keppandanum. Jóhann Helgi hafði hvítt gegn Þorvarði og höfðu menn á orði að Þorvarður hefði verið kominn í endataflið eftir 10. leiki (enda 2700 elostiga endataflsmaður ;)). Skákin endaði með jafntefli. Sverrir Örn vann Heimi í spennandi skák. Sigurbjörn bjargaði jafntefli gegn Stefáni eftir að hafa lent 2 peðum undir.
Stefán varð annar á stigum, og Jóhann þriðji.
Lokastaðan:
Sigurbjörn 6,5
Stefán Freyr 4
Jóhann Helgi 4
Sverrir Örn 4
Sigurður 3,5
Heimir 3
Þorvarður 2,5
Páll 0,5
B-flokkur:
Úrslit í 6.umferð:
Árni-Auðbergur: 1-0
Jón-Guðmundur: 0-1
Daníel-Ingi: 0-1
Einar-Stefán: 1-0 án taflmennsku
Staðan fyrir lokaumferðina:
Jón 4,5
Árni 4,5
Guðmundur 3,5
Daníel 3,5
Ingi 3
Auðbergur 3
Einar 1
Stefán 1
Mikil spenna var í B-flokknum fyrir síðustu umferðina. Guðmundur fékk þægilegan vinning í síðustu umferðinni gegn Stefáni, þar sem Stefán gat ekki vinnu sinnar vegna, mætt til leiks. Auðbergur hafði sigur á Daníel í hörkuskák. Einar og Árni tefldu mjög flókna skák, sem endaði með sigri Árna. Þetta þýddi það að Jón varð að vinna Inga til að vinna flokkinn, en það tókst ekki, þeir sömdu um jafntefli, í skák sem skipti nokkrum sinnum um eigendur.
Úrslit:
Guðmundur-Stefán: 1-0 án taflmennsku
Auðbergur-Daníel: 1-0
Ingi-Jón 0,5-0,5
Einar-Árni: 0-1
Lokastaðan:
Árni 5,5
Jón 5
Guðmundur 4,5
Auðbergur 4
Daníel 3,5
Ingi 3,5
Einar 1
Stefán 1
C-flokkur:
Gísli sá sér því miður ekki fært að ljúka mótinu, þess vegna varð baráttan í C-flokknum minni en vonir stóðu til.
Úrslit í 6-umferð:
Baldur-Halldór: 1-0
Sveinn-Gísli: 1-0 án taflmennsku
Snorri-Davíð: 1-0
Sverrir-Ragnar: 1-0
Staðan fyrir síðustu umferð:
Sverrir 5,5
Sveinn 5
Snorri 4
Gísli 2,5
Baldur 2
Ragnar 2
Davíð 2
Halldór 0
Sveinn fékk þægilegan vinning gegn Ragnari, þar sem hann komst ekki til leiks. Sama má segja um Baldur gegn Gísla. Snorri hafði nokkuð öruggan sigur gegn Halldóri. Sverrir sýndi mátt sinn gegn Davíð og sigraði örugglega. Glæsilegur sigur hjá efnilegasta skákmanni Hauka.
Lokastaðan:
Sverrir 6,5
Sveinn 6
Snorri 5
Baldur 3
Gísli 2,5
Ragnar 2
Davíð 2
Halldór 0
Menn voru sammála um það að vel hefði tekist til með þetta mót, þó það hefði líklega mátt vera betur skipulagt varðandi dagsetningar. Við viljum að endingu þakka keppendum fyrir frábært mót, óska Sigurbirni, Árna og Sverri til hamingju með sigurinn og sjáumst að ári.