Það voru 13 manns sem mættu á fyrstu skákæfinguna vetur. Það þurfti engan speking til að sjá það að menn voru komnir með fiðring í puttana og voru fullir tilhlökkunar að byrja aftur að tefla!
Heimir og Þorvarður leiddu mótið lengi framan af með fullu húsi. Þeir mættust síðan innbyrðis í einni af síðustu umferðunum og hafði Heimir þar betur í hörkuskák. Þorvarður tapaði síðan fyrir hinum geysiharða Ingólfi Hjaltalín (doktornum) í næst síðustu umferð og endaði í 3.sæti. Ingólfur átti frábært mót og lagði alla andstæðinga sína að Heimi undanskyldum. Heimir missti aftur á móti aðeins niður hálfan vinning á móti Sigga Sverris og vann öruggan sigur. Annars varð lokastaðan þessi:
1. Heimir Ásgeirsson 12,5 af 13
2. Ingólfur Hjaltalín 12
3. Þorvarður F. Ólafsson 11
4. Sigurður Sverrisson 8,5
5. Jón Magnússon 8
6-7. Sveinn Arnarson 7,5
6-7. Daníel Pétursson 7,5
8. Snorri Karlsson 7
9. Ingi Tandri Traustason 6,5
10. Hannes 4
11. Gísli Hrafnkelsson 3,5
12. Baldur Snæhólm 2
13. Rúnar Jónsson 1
14. Skotta 0
Þar sem enn var þó nokkur tími aflögu, var slegið upp öðru móti fyrir þá sem vildu tefla meira. Lokastaðan í seinna mótinu varð eftirfarandi:
1. Þorvarður F. Ólafsson 7 af 7
2. Heimir Ásgeirsson 6
3. Jón Magnússon 4,5
4. Snorri Karlsson 4
5-6. Sveinn Arnarson 2,5
5-6. Ingi Tandri 2,5
7. Gísli Hrafnkelsson 1,5
8. Rúnar Jónsson 0
Það sem gladdi undirritaðan einna mest var það hvað menn hafa verið að taka miklum framförum undanfarið. Má þar nefna mann eins og Snorra, sem hefur verið að tefla og stúdera mikið upp á síðkastið. Þess má geta að Snorri er nú þegar orðinn einn mesti teoríuhestur félagsins!