Haukamenn að gera það gott!

Nokkrir meðlimir í Skákdeild Hauka tómu þátt í minningarmótinu um Jón Þorsteinsson og stóðu sig vel.
Þetta voru þeir Stefán Freyr Guðmundsson sem fékk 11.5 v. og lenti í 10-14 sæti í heildina og vann fyrstu verðlaun í flokki 1901-2200 stig.
Jón Magnússon sem fékk 9 vininga og vann flokk undir 1600 stigum.
Frábært hjá þeim félögum og til hamingju.
Einnig tóku þátt og stóðu sig vel, Þorvarður Fannar Ólafsson 9.5v., Sverrir Örn Björnsson 9.v., Sverrir Þorgeirsson 8.v. og Snorri Karlsson 7.v.
Jón Magnússon vann meðal annars Þór Valtýsson (2140) 1,5-0,5
Frábær árangur Haukamenn og gefur vonandi tóninn fyrir keppnina um komandi helgi í Deildakeppninni.
Einnig er gaman að sjá hvað margir Haukamenn eru virkir að tefla þessa dagana.