Í upphafi tímabils ……..

Nú er handboltavertíðin loksins að fara af stað. Strákarnir eiga fyrsta leik á morgun, miðvikudag kl. 20.00 við Víking í Víkingsheimilinu. Fyrsti leikur í deildinni hjá stelpunum er fyrir norðan við KA/Þór 3.október. Þær taka þó forskot á sæluna á fimmtudaginn kl. 20.00 og spila við ÍBV um titilinn “Meistari meistaranna”.
Margir áhorfendur bíða sjálfsagt spenntir eftir að geta stappað, öskrað, nagað neglur og reytt hár sitt. Í upphafi tímabils er þó vert að rifja upp nokkur gömul gullkorn, sem enn eru í fullu gildi.

Aðgát skal höfð ! Að kunna að sigra og tapa
Oft er talað um uppeldisgildi íþótta og þess að stunda íþróttir. Uppeldisgildi íþrótta er mikið og þess vegna leggur þátttakan okkur miklar skyldur á herðar. Bæði á herðar þeirra sem taka þátt í leiknum og þeirra sem stjórna og þá einnig og ekki síst á stuðningsmennina sem standa upp í pöllum. Allir geta gert mistök, bæði leikmenn, þjálfarar og dómarar – það fylgir leiknum.
Í íþróttum er tekist á, þar er alltaf leikið til sigurs. Ekkert er jafnsætt og góður sigur en menn verða einnig að kunna sér hóf á sigurstundum. En gildi íþrótta felst ekki síst í því að kunna að tapa – kunna að taka ósigri. Lið sem kann að tapa, kann að taka mótlæti, er oftar en ekki stærst á slíkum stundum.
Haukar hafa átt að skipa einhverjum öflugasta stuðningsmannahópi landsins. Við hvetjum alla stuðningsmenn Hauka til að hafa í heiðri þann fjölskylduanda sem hefur ætíð ríkt í okkar félagi. Við mætum með bros á vör í alla leiki, sama hvernig fer. Við höfum í heiðri íþróttaandann og virðum andstæðinga okkar. Gætum þess hvað við segjum. Oft láta menn sé um munn fara ummæli sem betur væru ósögð. Látum það ekki henda okkur. Verum jákvæð og skemmtum okkur á þeim leikjum sem framundan eru. Það gerum við best með jákvæðri hvatningu til leikmanna, þjálfara og dómara. Jákvætt fólk er skemmtilegt fólk. Munum að aðgát skal höfð – þannig heiðrum við best félagið okkar, Hauka.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…