Meistarar meistaranna
Leikir í Meistarakeppni HSÍ um titilinn „meistari meistaranna“ verða á Ásvöllum sem hér segir:
Í mfl.karla leika Íslands- og bikarmeistarar Hauka við deildarmeistara
KA miðvikudaginn 19. sept. kl. 20.00.
Í mfl.kvenna leika Íslands- og deildarmeistarar Hauka við bikarmeistara
ÍBV sunnudaginn 23. sept. kl. 15.00.
Það verður örugglega hart barist í báðum þessum leikjum og ekkert gefið
eftir. Haukamenn eru hvattir til að mæta og styðja sína meistara.
