Áfram í evrópukeppninni
Á Ásvöllum í gær unnu Haukar Van der Voort Quintus í seinni leik liðanna í Evrópukeppni félagsliða. Leikurinn endaði 30-25 en Haukar unnu einnig fyrri leik liðanna úti í Hollandi 26-29 og eru því komnir áfram. Ekki er hægt að segja að leikurinn hafi verið mikið fyrir augað. Hollendingar hafa ekki verið þekktir fyrir mikinn styrk á handknattleikssviðinu og fóru strákarnir okkar oft niður á þeirra plan í leiknum. Þó sáust góð tilþrif öðru hvoru sérstaklega hjá markvörðum okkar. Markahæstur var fyrirliðinn Halldór með ellefu mörk og næstur kom Einar Örn með fjögur. Við óskum strákunum til hamingju með að vera komnir áfram í evrópukeppninni og þökkum þeim fjölmörgu áhorfendum sem lögðu leið sína á Ásvelli stuðninginn.
