Hvítasunnuhlaup Hauka 2026 fór fram í stórkostlegu veðri um nýliðna helgi og heppnaðist í alla staði frábærlega. Alls tóku um 410 kátir einstaklingar þátt í hlaupinu og nutu náttúrunnar í upplandi Hafnarfjarðar, meðal annars umhverfis Hvaleyrarvatn. Mikil gleði sveif yfir vötnum, jafnt í brautinni sem og í markinu þar sem tónlist og frábær stemning tók á móti hlaupurum.
Stjórn Skokkhóps Hauka vill koma á framfæri miklu þakklæti til allra sem komu að mótinu. „Kærar þakkir fyrir frábæran undirbúning og framkvæmd. Bestu þakkir til ykkar allra sem lögðu hönd á plóg á einn eða annan hátt. Einlægar þakkir til starfsfólks Hauka sem og allra styrktaraðila sem studdu við bakið á okkur í þessu velheppnaða hlaupi,“ segir Tryggvi, fyrir hönd stjórnar.
Að baki jafn viðamiklum viðburði og Hvítasunnuhlaupinu býr gífurleg vinna. Til gamans má geta þess að um 60 sjálfboðaliðar koma að framkvæmd hlaupsins svo allt gengi smurt fyrir sig. „Að sjá iðandi húsið og planið fullt af fólki í góðu veðri að leggja af stað var stórkostlegt. Án ykkar væri ekkert hlaup, takk fyrir snillingar,“ bætti Tryggvi við.



