Ársskýrsla Hauka 2025 er komin út

Knattspyrnufélagið Haukar hefur gefið út ársskýrslu fyrir árið 2025. Skýrslan fer yfir viðburðaríkt ár, fjárhagsstöðu og framtíðarsýn félagsins.

Knattspyrnufélagið Haukar kynnir með stolti ársskýrslu félagsins fyrir rekstrarárið 2025. Skýrslan inniheldur yfirgripsmikla samantekt á starfi deilda, árangri meistara- og yngri flokka ásamt ítarlegum upplýsingum um fjárhag og rekstur félagsins.

Árið 2025 var viðburðaríkt og einkenndist af mikilli uppbyggingu bæði á vellinum og í aðstöðu félagsins. Sérstaklega ber að nefna glæsilegan árangur í körfubolta og handbolta, auk þess sem nýtt knatthús hefur gjörbreytt allri æfingaaðstöðu á Ásvöllum fyrir knattspyrnudeild félagsins.

Hægt er að nálgast skýrsluna í heild sinni á PDF formi hér á heimasíðunni.

Áfram Haukar!