Haukar í Horni handbolti ATH

Kæru Haukar í Horni handboltans!

Í kvöld verður kjúklingasúpa fyrir Hauka í Horni handboltans í hálfleik á leik Hauka og Vals í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Á morgun er leikur tvö í rimmu kvennaliðs Hauka og Fram en þá bjóðum við upp á brauð og salöt í hálfleik.

Karlaleikurinn hefst kl. 19:30 í kvöld og kvennaleikurinn kl. 15:00 á morgun.

Við hvetjum ykkur til að mæta, styðja liðin og fá ykkur smá í gogginn í leiðinni!