KÓTILETTUKVÖLD HANDBOLTANS 18. MARS

Næstkomandi föstudagskvöld verður KÓTILETTUKVÖLD HANDBOLTANS fyrir stuðningsmenn og gesti á Ásvöllum. Eðal kótilettur og meðlæti, trúbadorinn Bjössi „Greifi“ heldur uppi fjörinu og glæsilegt happdrætti!

Miðasala er í fullum gangi í afgreiðslunni á Ásvöllum alla daga. Fyrir þá sem vilja taka frá borð fyrir stærri hópa, þá er hægt að senda email á „aslaugt@haukar.is“.

Fjölmennum og höfum gaman saman!