Páskabingó Hauka 2019

Páskabingó Hauka verður haldið laugardaginn 13. apríl nk. kl. 16:00 í Ólafssal. Að venju eru glæsilegir vinningar í boði, m.a.  páskaegg frá Góu í hinum ýmsu stærðum og gerðum.
Spjaldið kostar 500 krónur.
Á boðstólum verða einnig veitingar gegn vægu verði, m.a. heitt súkkulaði, kleinur og annað góðgæti.
Tilvalin fjölskylduskemmtun fyrir allt Haukafólk. Fjölmennum á Ásvelli og eigum góða stund saman.