Herrakvöld Hauka verður haldið 2. febrúar

Hið árlega herrakvöld Hauka fer fram í veislusalnum á Ásvöllum laugardagskvöldið 2.febrúar næstkomandi.

Eins og undanfarin ár eru það Stefán Úlfarsson og meistarakokkarnir á Þremur Frökkum sem sjá um að galdra girnilega rétti úr sjávarfangi eins og þeim einum er lagið þar sem hvalkjöt verður í öndvegi.Nánari matsteðill birtur þegar nær dregur.

Veislstjórn kvöldsins verður í höndum Óla Sæm og svo munu þeir Pétur Jóhann og Sigurjón V. Jónsson sjá um að kítla hláturtaugarnar og halda mönnum á tánum

Að sjálfsögðu verða fastir liðir eins og venjulega.
Treyju og málverka uppboð og happadrætti.

Miðasala er hafin
Hægt er að kaupa miða í afgreiðslunni á Ásvöllum eða með því að senda tölvupóst á innkaup@haukar.is
Miðaverð er 9.500 kr og 8.000 kr fyrir Hauka í horni

Húsið opnar 19.00

ÁFRAM HAUKAR

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…