Getraunaleikur Hauka 1×2 – Haustönn 2015

Nú er biðin senn á enda. 1. umferð Getraunaleiksins hefst næsta laugardag, 12. september.Spilað er í sal á 2. hæð. Sérfræðingar okkar munu mæta og kynna leikinn auk þess sem skáning fer fram. Leiknar verða 15 umferðir. Leikið er á laugardögum frá kl. 10 – 13. Glæsilegt kaffihlaðborð og sigurvegarar úr síðustu leikjaröð munu mæta og gefa byrjendum góð ráð !
Góða skemmtun!