Haukar fengu jafnréttishvataverðlaun Rio Tinto Alcan og Hafnarfjarðarbæjar

rioÍ dag tóku fulltrúar hafnfirskra íþróttafélaga á móti styrkjum frá Rio Tinto Alcan á Íslandi hf og Hafnarfjarðarbæ fyrir 16 ára og yngri iðkendur félaganna. Þessi styrkur hefur verið í gildi frá árinu 2001 og hefur stutt mikið við hið öfluga yngri flokka starf sem er hjá Haukum.

Að auki voru veitt jafnréttishvataverðlaun og í ár fékk Knattspyrnufélagið Haukar styrk fyrir mestu fjölgun iðkenda þess kyns sem hallaði á og svo fékk íþróttafélagið Fjörður einnig styrk fyrir mestu prósentufjölgun þess kyns sem hallaði á.

Knattspyrnufélagið Haukar þakka Rio Tinto Alcan og Hafnarfjarðarbæ fyrir þennan myndarlega styrk og mun gera enn betur í jafnréttismálum á næstu árum.

Hægt er að sjá nánari frétt á heimasíðu ÍBH – http://ibh.is/node/190

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…