Nýr grasvöllur og knatthús á Ásvöllum.

Um þessar mundir er unnið að gerð nýs grasvallar á Ásvöllum fyrir sunnan keppnisvöll félagsins. Nýi grasvöllurinn kemur í stað eldri grasvallar, en knatthúsið verður byggt þar sem grasæfingarsvæði félagsins er nú. Gert er ráð fyrir að hefja framkvæmdir við nýtt knatthús í byrjun næsta árs. Lengi hefur verið beðið eftir framkvæmdum við nýtt knatthús […]

Parketið á Ásvöllum tekið í gegn

Þó svo að sumarfrí sé í gangi í handboltanum er mikið álag á parketinu þessa dagana en verið er að taka það allt í gegn. Parketið verður pússað og lakkað upp á nýtt og nýjar línur málaðar. Það verður því eins og nýtt þegar æfingar fara af stað á nýju eftir sumarfríið.