Nýr leikmaður til kvennaliðs Hauka í Dominos deildinni

Fanney Ragnarsdóttir er nýr leikmaður meistaraflokksliðs Hauka í Dominos deild kvenna. Fanney kemur úr Fjölni þar sem hún var einn aðal leikmaður og skoraði 10,4 stig að meðaltali í leik. Fanney er kraftmikill leikmaður og bætist þar við hið unga og efnilega lið Hauka Fanney skrifaði undir tveggja ára samning og binda Haukar miklar vonir […]

Hauka-stúlkur á Símamótinu um helgina

5., 6. og 7. flokkur kvenna í Haukum taka þátt í Símamótinu um helgina en þetta er 32. mótið í röðinni. Í ár taka rúmlega 2000 stelpur þátt í mótinu frá 38 félögum þar sem 300 lið spila tæplega 1200 leiki. Haukar hituðu upp á Asvöllum seinni partinn í dag og tóku svo þátt í skrúðgöngu en […]

Andlátsfrétt

Látinn er Magnús Jónasson fyrrum formaður knattspyrnudeildar félagsins eftir erfið veikindi. Magnús var formaður knattspyrnudeiildar 1988 – 1990 og 1992. Hann átti sæti í aðalstjórn félagsins. Félagið sendir fjölskyldu Magnúsar innilegar samúðarkveðjur.

Íþróttaleikskólinn hefst 10.júlí

Í næstu viku byrjar íþóttaleiksskólinn sem er námskeið fyrir börn fædd 2011-2014. Námskeiðið fer fram í íþróttasal Hauka, þar sem allskonar stöðvum og leikjum er komið upp fyrir börnin. Foreldrum er velkomið að vera með börnum sínum eða skilja þau eftir. Námskeiðið byrjar klukkan 9:00 en það er gæsla frá klukkan 8:00-9:00 Það er borðað […]