Haukar – Þór Þ. í kvöld kl. 19:15

Þór Þorlákshöfn kemur í heimsókn í Schenkerhöllina í kvöld kl. 19:15 í Dominos deild karla. Haukarnir áttu ekki góða síðustu viku er þeir töpuðu tveim leikjum á útivelli á móti Stjörnunni, í bikar og í deild. Strákarnir eru staðráðnir í því að komast aftur á sigurbraut og halda sér við topp deildarinnar. Haukarnir eru taplausir […]

Haukar – Fram í Olísdeild karla annað kvöld

Eftir góðan útisigur á HK í síðasta leik er komið að heimaleik gegn Fram en leikurinn hefst kl. 19:30. Strákarnir mættu Fram í 1. umferð mótsins og töpuðu naumlega með einu marki. Fram liðið er sem stendur á botni deildarinnar með 4 stig með 2 unna leiki og 6 tapaða en á leik inni gegn […]

Skemmtikvöld

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu býður öllum Haukafélögum nær og fjær að taka smá upplyftingu frá skammdeginu á skemmtikvöldi sem verður föstudaginn 14. nóvember n.k. og hefst kl. 20:00.   Þetta er tilvalið tækifæri til að mæta á hverfispöbbinn og hitta félagana.  Hér er að sjálfsögðu átt við félagsheimili Hauka á Ásvöllum, nánar tiltekið veislusalur.   […]

Haukar – KR, Dominos deild kvenna

KRingar koma í heimsókn í kvöld og munu etja kappi við Haukastúlkur í Schenkerhöllinni kl. 19:15. Haukastúlkurnar hafa staðið sig einstaklega vel það sem af er tímabilinu og hafa blásið á allar spár og hafa unnið 5 leiki af fystu 6 eftir að hafa tapað fyrsta leik tímabilsins naumlega í Hólminum. Stelpurnar hafa verið að […]

Haukar og DB Schenker framlengja samstarfssamning

Haukar hafa náð samkomulagi við DB Schenker um áframhaldandi samstarf aðila. Mun því íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum áfram bera nafn Schenker, Schenker-Höllin fyrir íþróttahúsið að Ásvöllum og Schenker-Völlurinn, fyrir knattspyrnuvöll félagsins. Haukar hafa lagt mikla áherslu á að sinna sem best þjónustu í sínu nærsamfélagi sem rímar vel við alþjóðlega stefnu DB Schenker. Innan Hauka […]

Haukapiltar sækja HK heim í Digranesið annað kvöld

Eftir smá hlé á Olísdeild karla vegna landsleikja hefst 9. umferðin á morgun. Haukar fara í Digranesið og sækja HK heim en leikurinn hefst kl. 19:30. HK er í 8. sæti deildarinnar með 4 stig, 2 unna leiki en 6 tapaða. Þeir voru fyrsta liðið til að sigra topplið Aftureldingar og eru sannarlega sýnd veiði […]

Valur – Haukar í Dominos deild kvenna í kvöld

Haukastelpurnar heimsækja Hlíðarenda í kvöld kl. 19:15 og geta með sigri haldið sig á toppi deildarinnar. Haukarnir hafa unnið fjóra leiki í röð og hafa verið á góðu skriði í deildinni en nú er komið að því að heimsækja mjög erfiðan útivöll en Valsmenn geta með sigri náð að jafna Haukastúlkur. Haukar lögðu Breiðablik í […]

Stjarnan – Haukar í bikarnum í kvöld kl. 19:15

Haukar munu etja kappi við nágranna okkar úr Garðabænum, Stjörnuna, kl. 19;15 í kvöld í 32. liða úrslitum Powerade bikarsins. Haukarnir eru taplausir í vetur og hafa unnið alla fjóra fyrstu leiki sína í deildinni. En nú er komið að bikarnum og það er stórleikur, en Stjarnan hefur verið að spila mjög vel uppá síðkastið […]