1×2 Getraunaleikur Hauka – Vorönn

Haukar logo fréttirNæsta fimmtudagskvöld verða kynnt úrslit í Vorleik Haukagetrauna. Athöfnin fer fram á skemmtikvöldi Knattspyrnudeildar sem hefst kl. 20. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir sigur í Úrvalsdeild, Álpappírsdeild og Lehmans Brothers keppninni. Kynnir kvöldsins verði hinn kunni JBS sem mun m.a. frumflytja nýtt skemmtiatriði. Þar sem búist er við miklum fjölda gesta eru menn hvattir til að mæta tímalega til að tryggja sér sæti en húsið opnar kl. 19:30.