Haukar.is
Félagið mitt

 
  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Körfuknattleiksdeild
Fréttir frá körfuknattleiksdeild Hauka

3 á 3 og pub quiz

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Það styttist óðum í föstudaginn þar sem 3 á 3 mót verður haldið á Ásvöllum og svo Pub Quiz strax á eftir. Skráning í mótið er í fullum gangi og ekki seinna vænna að smala í lið og skrá sig ef menn eða konur ætla að taka þátt.

Um leið og mótið er búið verður Pub Quiz haldið uppi á palli. Þemað að þessu sinni er úrslitakeppnir í körfubolta hér heima og erlendis sem og almenni flokkurinn verður á sínum stað með alls kyns góðmeti.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest til að gera kvöldið skemmtilegra

 

 
aobjecta

Gunnhildur og Helena í landsliðinu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Gunnhildur er í landsliðinu sem tekur þátt á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg í enda maí - karfan.isSverrir Þór Sverrisson hefur valið 12 manna lið Íslands sem keppir á Smáþjóðaleikunum í endaðan maí. Gunnhildur Gunnarsdóttir og Helena Sverrisdóttir eru í liðinu. Margrét Rósa Hálfdanardóttir var í æfingarhópnum sem var valin fyrst.

Í dag var blaðamannafundur vegna Smáþjóðaleikanna og þar tók Karfan.is Helenu tali - sjá hér.

Óskum við þeim til hamingju og góðs gengis á mótinu sem hefst 29. maí gegn Möltu.

Lesa meira...
 

3 á 3 mót Hauka B og Pub Quiz á eftir

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar B standa fyrir 3 á 3 móti föstudaginn 31. maí næstkomandi á heimavelli sínum Ásvöllum (Schenker-höllin). Mótið verður opið fyrir alla hvort sem þú ert 5 eða 65 og ekki verður gert upp á milli kynja. Leikmenn í úrvalsdeild eða 1. deild karla eru þó ekki gjaldgengir.

Þrír til fjórir geta verið saman í liði og verða leikirnir 10 mínútur eða upp í 25 stig. Gefin verða tvö og þrjú stig fyrir körfuna og verður miðað við að liðin spili minnst þrjá leiki. Leikjafjöldi fór þó eftir skráningu og er um að gera að skrá sig sem fyrst þar sem að takmörkun verður á fjölda liða.

Lesa meira...
 

Arnþór Freyr til liðs við Hauka

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Arnþór handsalar samninginn með Baldri og Ívari - emil(hjá)haukar.isArnþór Freyr Guðmundsson skrifaði í morgun undir samning við Hauka og mun leika með liðinu í Dominos deild karla næsta vetur en samningur Arnþórs er til eins árs.

Lesa meira...
 

10 flokkur kvenna Íslandsmeistari

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út Skoða sem PDF skjal

Haukar íslandsmeistarar 10 flokki kvennaHaukar urðu í dag Íslandsmeistarar í 10.flokki kvenna í körfu eftir jafnan og spennandi leik við Keflavík eftir 38 - 34 sigur á Keflavík. Haukastelpur eru þar með tvöfaldir meistarar í þessum flokki því liðið vann einnig bikarinn fyrr í vetur með fyrsta sigurleik sínum á móti Keflavík. Það var gríðargóð barátta leikmanna Hauka í vörn og fráköstum sem skilaði sigrinum á Keflavík í dag en lið Hauka tók alls 46 fráköst á móti 26 fráköstum Keflvíkinga. Silvía Rún Hálfdanardóttir átti enn einn stórleikinn fyrir Hauka en hún var í leikslok valinn besti leikmaður úrslitaleiksins með 21 stig, 13 fráköst, 4 stolna bolta og 2 varin skot.

Gríðarlega efnillegur flokkur sem Haukar eru að fá upp í þessum flokki. Á karfan.is má finna nánari umfjöllun um leikinn til hamingju stelpur!

 


Síða 1 af 314
Borði
Borði


Molar

Í sögu Hafnarfjarðar, sem Sigurður Skúlason, magister skrifaði, og kom út árið 1932, er minnst á öll þau íþróttafélög sem höfðu starfað og voru starfandi í bænum á þeim tíma.  Þar á meðal eru Haukar nefndir til sögunnar sem yngsta íþróttafélagið í bænum.  Fimleikafélag Hafnarfjarðar er ekki nefnt á nafn í þessari samantekt sem vekur upp spurningar hvort Haukar séu ekki í raun réttri elsta starfandi íþróttafélag í Hafnarfirði. 

samstarfsadilar

Borði