Val á íþróttafólki og þjálfara ársins

Reglugerð fyrir val íþróttamanni og þjálfara Hauka.

 

  1. gr. Valið

Á síðasta reglulega fundi aðalstjórnar Hauka hvert ár (jólafundur) skal fara fram val á þeim aðilum sem skarað hafa fram úr í félaginu á liðnu ári.  Eftirfarandi skulu vera valdir:

  1. a) Besti þjálfari Hauka
  2. b) íþróttakona Hauka
  3. c) íþróttakarl Hauka

 

2.gr. Atkvæðabærir aðilar

Valið skal fara þannig fram að einungis kjörnir fulltrúar í aðalstjórn Hauka hafi atkvæðisrétt í kosningunni.

 

3.gr. Tilnefningar

Allar deildir í félaginu skulu tilnefna þá sem eiga að koma til greina við kjör á fundinum. Almennt skal hver deild tilnefna 1-3 í hverjum flokki.  Í sérstökum tilvikum er heimilt að tilnefna fleiri.

Einungis þeir sem hafa verið tilnefndir af viðkomandi deild koma til álita við kjörið.

Formenn deilda bera ábyrgð á skilum á tilnefningum fyrir fundinn og skulu tilnefningar koma í síðasta lagi fyrir upphaf fundar.

Heimilt er að láta fylgja með tilnefningu upplýsingar um feril viðkomandi aðila og afrek hans á liðnu starfsári.

 

  1. gr. kjörið

Hver atkvæðabær aðili skal fá í hendur kjörseðil. Á atkvæðaseðilinn skal raða þremur aðilum þannig að sá sem hefur staðið sig best kemur fyrst.  Atkvæðaseðilinn er ógildur ef ekki er raðað þremur aðilum í númeraröð á seðlilinn.

Kosningin er trúnaðarmál og skal ekki gefið upp hvað viðkomandi kaus.

Þegar kosningu hefur lokið skal formaður félagsins eða staðgengill hans safna atkvæðaseðlum í lokað umslag og innsigla það.  Samhliða því skal tilnefna sérstaka 3 manna nefnd um kjörið og skal formaður nefndarinnar tilnefndur sérstaklega.

 

5.gr.  Talning atkvæða.

Í síðasta lagið tveimur dögur fyrir kynningu úrslita skal nefnd um kjörið koma saman og telja atkvæði.  Atkvæði skulu talin þannig að fyrir val í fyrsta sæti fást 3 stig, fyrir val í annað sæti 2 stig og þriðja sæti fær 1 stig.

Sá aðili sem fær flest samanlögð stig verður valinn sigurvegari í þeim flokki.  Komi til þess að atkvæði falli jöfn skal nefndin kjósa á milli aðila.

 

6.gr.  Íþróttahátíð

Í hádeginu hinn 31. desember ár hvert, nema aðalstjórn ákveði annað, skal boða til samsætis þar sem kjör samkvæmt 2.mgr. 1.gr. verður tilkynnt.  Nefnd um kjör íþróttamanns og þjálfara skal hafa veg og vanda af samstætinu.   Umboð nefndarinnar fellur niður um leið og samsæti lýkur.

Á hátíðinni skal kalla upp þá aðila sem hlotið hafa tilnefningar í hverjum flokki og síðan skal tilkynna hver var valinn í hverjum flokki.  Kynningin skal fara fram í þeirri röð sem ákveðin er í 2.mgr. 1.gr.

Íþróttafólki og þjálfara Hauka skal afhenda verðlaunagripi í samræmi við ákvörðun nefndar um kjörið.

Í samsætinu má einnig heiðra sérstaklega fyrir önnur atriði en tilgreind eru í reglugerð þessari.

Þannig samþykkt af aðalstjórn Hauka,

á stjórnarfundum hinn 9. nóvember 2010

og 8. nóvember 2011.

Breyting á aðalstjórnarfundi 2. desember 2014.