Snorri með frábæran árangur!

Haukamaðurinn Snorri G. Bergsson er um þessar mundir að tefla á skákmóti í Hastings á Englandi. Snorri gerði sér lítið fyrir og sigraði skoska stórmeistarann Colin Mcnab (2456) í fyrstu umferð og það með svörtu!
Snorri hefur sýnt það undafarið að hann er í mikilli sókn enda búinn að stúdera vel og taka vel á því við æfingar.
Það er vonandi að Snorri sýni snilldina hér á síðunni fljótlega.
Til hamingju Snorri.