Skákæfing 25. október

Heimir mætti galvaskur aftur eftir hlé vegna haustmótsins og stöðvaði sigurgöngu Varða. Einungis Varði náði að taka af honum hálfan punkt. Varði mátti enn sætta sig við jafntefli við Sverri undrabarn og varð hálfum vinningi á eftir Heimi. Sverrir varð svo þriðji með 9,5 vinninga. Stefán Pétursson átti gott mót og varð 4-5. ásamt Inga með 8,5.

Lokastaðan:
1.Heimir 12,5 af 13
2.Þorvarður 12
3.Sverrir Þorgeirs 9,5
4-5.Ingi Tandri 8,5
4-5.Stefán Péturs 8,5
6.Guðmundur 7
7-8.Baldur 6,5
7-8.Auðbergur 6,5
9-10.Arnar Jóns 6
9-10.Páll Sig 6
11-12.Sverrir afi 3
11-12.Kristján 3
13.Brynjar 2
14.Rúnar 0