Knattspyrnufélagið Haukar 87 ára

Á morgun fögnum við 87 ára afmæli félagsins okkar.  Allt frá stofnun félagsins þann 12. apríl 1931 hafa Haukar horft með bjartsýni og dug til þeirra fjölmörgu verkefna sem félagið hefur tekist á við. Öflugt íþrótta- og félagsstarf hefur verði aðalsmerki  félagsins í áratugi og uppbygging félagsins verið eitt ævintýri.   Íþróttamiðstöðin hér á Ásvöllum er glæsilegt mannvirki og á morgun fögnum við því að nýr íþróttasalur, sem bera mun nafnið  Ólafssalur, í minningu okkar góða félaga, Ólafs Rafnssonar, fyrrum forseta ÍSÍ,  verður tekinn í notkun.  Með tilkomu nýja salarins leysist verulega úr þeim aðstöðuvanda sem hér hefur  skapast  undanfarin ár.

Á þessum tímamótum þökkum við okkar öflugu framvarðarsveit, íþróttafólki Hauka, starfsfólki, sjálfboðaliðum og stuðningsmönnum öllum fyrir öflugan stuðning við félagið okkar.  Með stuðningi ykkar er Knattspyrnufélagið Haukar eitt af öflugustu íþróttafélögum landsins.

Samstarf Hauka og Hafnarfjarðarbæjar hefur ætíð  verið farsælt og gott og færa Haukar Hafnarfjarðarbæ bestu þakkir fyrir dyggan stuðning við uppbyggingu mannvirkja hér á Ásvöllum.

Í tilefni afmælis félagsins á morgun,  fimmtudag, 12. april, er Haukafélögum og velunnurum boðið að  þiggja veitingar á milli klukkan 18:30 – 20:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.

Áfram Haukar.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…