HVÍTASUNNUHLAUPIÐ NÆST BEST ÁRIÐ 2015!

víðivangshlaup haukaHvítasunnuhlaupið var valið næst besta utanvegahlaupið 2015 af hlaupurum á hlaup.is

Við erum stolt af þessari viðurkenningu.

 

 

Ummæli sem hlaupara gáfu hlaupinu er m.a.

„Frábærlega vel að öllu staðið, góðir brautarverðir í krefjandi braut“

„Vel heppnað í alla staði, mæti að ári…“

„Þetta hlaup er Haukum til mikils sóma. Frábær hlaupaleið ….“

„Líklega með þeim skemmtilegri hlaupum sem eru í boði á Íslandi.“

„Hreint frábært, hef ekki hlaupið þetta áður, þetta er klarlega skemmtilegasta hlaup sem ég hef hlaupið.“

„Frábært hlaup í alla staði og flott hlaupaleið allt til fyrirmyndar“

„Takk kærlega Haukafólk, frábærir sjálfboðaliðar og brautarvarsla til fyrirmyndar.“

„Frábært fjölbreytt utanvegahlaup og geðveik útdráttarverðlaun.“

„Hvað framkvæmdina varðar er þetta besta hlaup sem ég hef hlaupið á Íslandi. Og ódýrt í þokkabót“

„Skemmtilegasta hlaup sem ég hef tekið þátt í og allt skipulag uppá 10“

„Frábært hlaup og vel skipulagt.“

„Einstaklega skemmtilegt hlaup og brautarverðir mjög duglegir að halda uppi stemningu“

„Flott hlaup um fallegt svæði. Erfitt og krefjandi.“

„Frábært fjölbreytt utanvegahlaup og geðveik útdráttarverðlaun.“

„Frábært hlaup í náttúruperlu Hafnarfjarðar“

„Flott hlaup, rosalega skemmtilegt, mikil stemning og fjör“

„Frábært hlaup í fallegu umhverfi“

 

Er hægt að fá betri meðmæli með hlaupi.

 

Í fyrsta sæti var Esjuhlaupið og í þriðja sæti Laugavegshlaupið.   Við erum þar í góðum félagsskap frábærra hlaupa
​

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…