Haukar „Meistarar meistaranna“
Strákarnir unnu KA 26-23 í leiknum um „meistara meistaranna“ í
gærkvöldi. Sigur Hauka var aldrei í hættu, þeir stjórnuðu leiknum og
voru yfir allan tímann, nema fyrstu mínútur og staðan í hálfleik var
12-9 fyrir Hauka. Einar Örn og Þorkell voru markahæstir með 6 mörk
hvor, Halldór og Ásgeir Örn með 4 hvor, Aron og Rúnar 2 mörk hvor og
Andri Þorbjörns og Jón Karl með eitt mark hvor. Varin skot voru ca 20,
sem markverðirnir Magnús og Bjarni skiptu nokkuð jafnt á milli sín. Hjá
KA var Arnór Atlason markahæstur með 8 mörk. Þó svo Haukarnir hafi ekki
átt neinn toppleik, var allt annað að sjá til þeirra en í síðasta
Evrópuleik. Auðséð að þeir eru á réttri leið.
Til hamingju með fyrstu dollu vetrarins.
