Haukamótið í golfi – 2016

Haukar logo 85 áraHaukamótið 2016 verður haldið á Hvaleyrarvellinum, föstudaginn 16. september nk..

Keppt er um Haukaskjöldinn í höggleik án forgjafar, Rauða Jakkann í punktakeppni og titilinn Öldungameistari Hauka til minningar um Ólaf H. Ólafsson, einnig í punktakeppni.

Hámarksforgjölf kvenna er 28 og karla er 24.

Konur leika af rauðum teigum, karlar af gulum teigum.

Nándarverðlaun verða veitt á par 3 brautum vallarins.

Þátttökugjald er 5000 krónur.

Verðlaunaafhending verður kl. 20:00 í Golfskálanum.

Dregið verður úr skorkortum þeirra sem ekki hljóta verðlaun í mótinu.

Aldurstakmark er 18 ár og fer skráning fram á golf.is

Haukafélagar sem ekki taka þátt í mótinu eru hvattir til að mæta við verðlaunaafhendinguna, njóta góðra veitinga, auk hins fallega útsýnis sem Golfskáli Keilis býður upp á.