Góður Haukafélagi fallinn frá

Fallinn er frá góður félagi, Guðmundur Friðrik Sigurðsson. Hann var stjórnarmaður í handknattleiksdeild félagsins um áraraðir – formaður 1972 – 78  og 1983 – 85. Hann sinnti m.a. fjárhagsbókhaldi félagsins um áratuga skeið. Golfið var honum hugleikið hin seinni ár og hélt  hann ásamt öðrum um gólfmót Hauka. Hans er nú sárt saknað og sendir félagið fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.