Fréttasafn

  • Barcelonaferð

    Eins og allir sannir Haukamenn vita þá stendur mikið til hjá okkur næstu vikurnar í Meistardeildinni. Nú er unnið hörðum höndum í að undirbúa ferð til Barcelona. Eftir að hafa skoðað ýmis misgóð tilboð var ákveðið af stjórn Hauka í Horni að setja saman ferðanefnd til að skipuleggja „Hópferð að hætti Hauka“. Í nefndinni eru…

  • Skákdeild Hauka-Hrókurinn í kvöld.

    Ég læt hér fylgja með umfjöllun um viðureignina sem er á skak.is Úrslitaviðureign Hauka og Hróksins Fjórðudeildarmeistarar Skákdeildar Hauka og Íslandsmeistarar Hróksins mætast í úrslitum Hraðskákkeppni taflfélaga þriðjudaginn 7. september. Viðureignin fer fram á heimavelli Hauka á Ásvöllum og hefst kl. 20:00. Það er Taflfélagið Hellir sem stendur fyrir mótshaldinu og er þetta í níunda…

  • Haukar-Víkingur mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar höfðu eitt stig út úr leiknum við Víking á Ásvöllum í dag er liðin skildu jöfn 28-28. Jafnræði var með liðunum allan leikinn. Í fyrri hálfleik komust Haukar tvisvar tveimur mörkum yfir, í byrjun 2-0 og svo 8-6. Í háfleik var enn jafnt 13-13. Seinni hálfleikur byrjaði svipað og sá fyrri, en fljótlega…

  • Staðan ekki rétt

    Biðjumst velvirðingar á því að staðan í RE/MAX deildum karla og kvenna er ekki rétt hér á síðunni. Eigum við smá tæknivandamál að stríða og þar sem sérfræðingur okkar er staddur erlendis lagast þetta ekki fyrr en eftir ca viku.

  • FH-Haukar mfl.karla

    Strákarnir okkar héldu uppteknum hætti og sigruðu Fimleikafélagið 23-24 í Kaplakrika í dag. Bæði lið voru lengi í gang, staðan 1-2 eftir 10 mínútna leik. Eftir það fóru hlutirnir að ganga, heimamenn reyndar yfir 6-5 en þá kom góður kafli hjá strákunum okkar og staðan í hálfleik var 9-14. Seinni hálfleikur lofaði góðu í byrjun…

  • Skákdeild Hauka opnar vef!!!

    Þá er loksins komið að því að Skákdeild Hauka opnar vef. Það tekur nokkrun tíma að koma honum í það horf sem að hann á að vera í. Hér verður ýmistlegt til fróðleiks og skemmtunar. Fréttir af félögunum og ýmislegt annað. Þeir sem að hafa áhuga á að setja inn fréttir eða annað geta haft…

  • Sýn og Meistaradeildin í handbolta

    Í hádeginu í dag var skrifað undir samning milli HSÍ og Sýnar um sýningarréttinn á leikjum frá Meistaradeildinni í vetur. Eins og alþjóð ætti að vita leika Haukar í B-riðli með stórliðunum Barcelona, Magdeburg og Vardar og mun Sýn vera með beinar útsendingar frá leikjum Hauka í Meistaradeildinni. Frábært fyrir íslenskan handbolta.

  • Haukar-HK mfl.karla

    Strákarnir okkar unnu góðan sigur í RE/MAX deild karla á HK á Ásvöllum í kvöld 28-23. HK skoraði fyrsta markið og var það eina skiptið sem þeir höfðu forystu. Fyrstu mínútur voru jafnar, 2-2, 3-3, 4-4. Þá gerðu okkar menn 3 mörk í röð, 7-4 og eftir það voru gestirnir alltaf skrefinu á eftir. Staðan…